Man ekki eftir stöðunni svona alvarlegri
April 7, 2026
RÚV
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir heila siðmenningu verða þurrkaða út í kvöld, semji Íranar ekki við Bandaríkjamenn og opni Hormússund. Utanríkisráðherra Íslands segir það brot á alþjóðalögum og kveðst ekki muna stöðuna verri í alþjóðamálum.Átök Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran hafa staðið síðan í lok febrúar. og ekki er útlit fyrir að þeim linni á næstunni þrátt fyrir friðarumleitanir.
Klerkastjórnin í Íran hefur til miðnættis, að íslenskum tíma, samkvæmt yfirlýsingu Karoline Leavitt, fjölmiðlafulltrúa Hvíta hússins.J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna sagði fyrr í dag að Bandaríkjaher ætti verkfæri sem hann hefði ekki beitt hingað til. Hvíta húsið hafnaði því að Vance ætti við kjarnorkuvopn. Aðspurð hvort Trump væri reiðubúinn að nota kjarnorkuvopn sagði Leavitt blaðamönnum að aðeins forsetinn vissi hver staðan væri og hvað hann ætlaði sér að gera.Hinir stóru ætla að ráðaÞorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segist ekki muna eftir ástandinu svo svörtu.Við stöndum svolítið frammi fyrir heimi þar sem hinir stóru ætla sér að ráða og ætla sér að hafa sitt í gegn óháð öllu og öllum. Það er ekki fallegur heimur og ekki heimur sem hentar Íslandi.“Hún segir alþjóðalög gilda um allar þjóðir, stórar sem smáar.Það að ráðast á borgaralega innviði, hvort sem það eru brýr, orkuinnviðir, vatnsból eða hóta útrýmingu heils menningarheims er auðvitað brot á alþjóðalögum. Alveg eins og það er líka brot á alþjóðalögum að fara gegn frelsi þjóða til siglinga og svo framvegis.“Spurð hvað sé til ráða láti forsetinn verða af áformum sínum segir Þorgerður mörg samtöl í gangi bak við tjöldin. Hún segir íslensk stjórnvöld undirstrika mikilvægi þess að fara eftir diplómatískum og friðsamlegum leiðum og að aðildarlönd NATO standi þétt saman.En ég man ekki eftir stöðunni svona alvarlegri í háa herrans tíð.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.