„Maður vill svo mikið að þetta sé til“
0
World

„Maður vill svo mikið að þetta sé til“

April 19, 2026
Scroll

Posted 3 hours ago by

Við trúum á þetta og við viljum að þetta sé til, þó að þetta sé erfiður bissness. Okkur er alveg sama um það,“ segja myndlistarkonurnar Kristín Karólína Helgadóttir og Tara Njála Ingvarsdóttir sem reka bókverkabúðina og sýningarrýmið Bókumbók á Njálsgötu 11 í Reykjavík. Þar eru bækur og bókverk úr ýmsum áttum og af ólíkum gerðum. Bókumbók heldur líka úti myndlistarsýningum og viðburðum.Melkorka Ólafsdóttir kom við hjá þeim og ræddi við þær í Víðsjá á Rás 1.Gera tilraun með bókabúðarformiðKristín og Tara segjast hafa lengi legið yfir nafninu sem er fengið úr bókverki sem Magnús Pálsson gaf út með nemendum sínum árið 1980.

„Maður vill svo mikið að þetta sé til“

Ég held að það hafi verið tilraunakúrs í bókagerð, bók sem er stútfull af tilraunum um bókina og bókverk, texta og myndlist,“ segir Kristín.Þetta sé lýsandi fyrir bókabúðina, hún sé eins konar tilraun með formið. Við erum kannski svolítið að gera það sama og þau eru að gera í þessari bók, reyna að teygja bókaformið, skoða það og kanna og snúa því á hvolf,“ segir Tara.Það er munur á bókverki og hefðbundinni bók. Bókverk er oftar en ekki í litlu upplagi og á mörkum þess að vera myndlistarverk eða bók. Í Bókumbók má einna helst finna bókverk en einnig fræðibækur og skáldsögur. Bara allt sem okkur finnst skemmtilegt,“ segir Kristín.En þá er það kannski ekkert sem hægt er að finna í öðrum bókabúðum. En ég held að það sé alltaf smá myndlistarslagsíða í öllu, hvort sem það séu ljóðin eða fræðibækurnar.“Við erum kannski ekki með einhverja reglu. Ef það er bók sem við elskum og viljum að sé hérna, þá er hún hérna,“ bætir Tara við.Mjög óvænt að þær skyldu standa vaktina í verslunBókumbók er rekin af hópi listamanna en forsprakkinn var Guðrún Benónýsdóttir sem er einnig í Útidúr. Við vorum allar að vinna saman í Myndlistarskólanum. Hún pikkaði í okkur og sagði: Hey, viljið þið ekki opna bókabúð með mér?“Við vorum einmitt að tala um hvað við værum þakklátar fyrir að hún hefði gert það. Þetta er búið að vera svo gjöfult,“ segir Kristín.En við erum líka alltaf í smá sjokki yfir því að við stöndum hérna vaktirnar í búð. Það er eitthvað sem við ætluðum okkur ekki að gera,“ bætir Tara við og hlær. Þetta var mjög óvænt og stundum þegar kemur að einhverju bókhaldi og excel-skjölum þá lokum við bara augunum. En við reynum okkar besta í því.“Vilja skapa samfélagHópurinn hefur reynt að skapa samfélag í kringum bókabúðina með viðburðum og myndlistarsýningum. Hann byrjaði á Hólmaslóð en þrátt fyrir að vera aðdáendur Grandans þá hafi verið erfitt að vera með litla sértæka bókabúð þar. Við sáum ekkert annað en að fara alla leið og vera hérna í miðbænum þar sem fólk er á gangi og kannski rambar inn.“Svo erum við allar myndlistarmenn og okkur langaði að vera með myndlistarsýningar og fullt fleira.“Hingað til hafa til að mynda verið sýningar og páskabingó. Með vorinu er margt í bígerð enda er stór garður við húsið sem býður upp á fjölmörg tækifæri, eins og garðálfasýningu.Maður vill svo mikið að þetta sé til“Búðin minnir einna helst á safnbúð eins og eru við gallerí í stórborgum. Þær segjast vita til þess að margir leiti uppi búðir sem þessar erlendis og þeim finnst gaman að geta haldið úti slíkri hér á landi. Við opnuðum á svipuðum tíma og GARG, þau eru líka með bókverk en Helga kemur úr grafískri hönnun en við úr myndlist. Það er fallegt að það sé bæði í gangi,“ segir Tara.Maður vill svo mikið að þetta sé til. Þetta er til í flestum stórborgum.“Þetta er ekki aðeins verslun fyrir fólk að koma í og kaupa bækur heldur getur það komið og skoðað. Auðvitað er þetta svolítil samkeppni, það er allt á netinu og Instagram en við trúum samt á þetta og viljum að þetta sé til þó að þetta sé erfiður bissness, okkur er alveg sama um það,“ segir Kristín.Helsta fyrirmynd búðarinnar er Boekie Woekie í Amsterdam þar sem ein úr hópnum var í starfsnámi. Við horfum mikið til hennar og erum allar aðdáendur hennar.“Væri ekki hægt án stuðnings vina og vandamannaPrentgripir bjóða upp á aðra leið til að miðla myndlist og Tara segir þá líka vera prentaða heimild. Svo finnst mér líka spennandi, því þó að við séum með einhverja doðranta og alls konar fallegar og dýrar bækur þá hef ég líka gaman af alls konar blöðungum og prentum, jafnvel bara ókeypis dóti sem við finnum og á heima hér. Það er gaman að skoða það.“Margt sem við eigum hér er bara í einu eintaki og þá er það bara til sýnis. Þá verður þetta líka einhvers konar safn með tímanum.“Þær finna mikinn meðbyr frá bæði vinum og öðrum sem lýst hafa yfir stuðningi við verslunina. Þeim þykir fallegt að finna fyrir því hve margir vilja hjálpa og líka bara vera.Þetta væri ekki hægt annars, nema fólk væri að koma og mæta og vera með.“Verslunin Bókumbók er listamannarekið sýningarrými og bókverkabúð á Njálsgötu. Sams konar búðir eru víða í stórborgum og eiga vel heima hér. Aðstandendur hennar segja að hún hefði ekki getað orðið að veruleika án stuðnings áhugasamra.Rætt var við Kristínu Karólínu Helgadóttur og Töru Njálu Ingvarsdóttur um Bókumbók í Víðsjá á Rás 1. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More