Lundinn er kominn til landsins
April 10, 2026
RÚV
Lundinn, einn af vorboðum landsmanna, sást bæði í Grímsey og á Borgarfirði eystra í gær. Það voru systurnar Halla og Unnur Ingólfsdætur sem sáu til lunda í björgunum suður við vitann í Grímsey og Björn Aðalsteinsson sá til hans við Hafnarhólma á Borgarfirði eystra. Lundinn er oft á ferðinni á þessum árstíma, eða fyrstu vikurnar í apríl. Þetta er nokkuð hefðbundinn tími, segir Erpur Hansen, forstöðumaður Náttúrustofu Suðurlands:Hann hefur sést þarna alveg í lok mars ef ég man rétt.
Hann er yfirleitt fyrr á ferðinni þarna í Grímsey og fyrir austan í Hafnarhólmanum. Þar eru til þokkalega langar upplýsingar í tímaröð miðað við hérna fyrir sunnan í Vestmannaeyjum. Við búumst við að fá hann hérna til Eyja í næstu viku,“ segir Erpur.Óhræddur í snjóSnjó hefur tekið upp í hlýindum síðustu daga og lundinn ætti því að eiga auðvelt með að komast í holurnar sínar. En er lundinn í einhverri hættu í miklum snjó?Nei nei, hann er alveg óhræddur við snjó. Meira að segja þeir verpa, ég hef séð þá undir snjóalagi í júní 2011. Þá eru þeir bara inní holunum og svo grafa þeir sig bara í gegnum snjóinn. Það var alveg 10 sentímetra lag,“ segir Erpur Snær Hansen.Miklir stormar hafa geisað á sunnanverðu Norður-Atlantshafi þar sem hluti af íslenskum fellifuglum heldur til á veturnar. Erpur telur það geta haft áhrif á varpið í vor.Þarna er partur af okkar fellifuglum. Allur íslenski stofninn fellir þarna á þessum tíma þegar þessir stormar hafa verið í vetur. Við höfum smá áhyggjur af því að við höfum misst eitthvað af fugli úti á sjó í þessum látum.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.