Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og á Suðurlandi í fyrramálið
World

Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og á Suðurlandi í fyrramálið

April 5, 2026
RÚV
Scroll

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir því til fólks sem þarf að vera á ferðinni á morgun, annan í páskum, að fara áður en veðrið skellur á - eða eftir að því slotar. Það auðveldi mjög störf allra viðbragðsaðila ef þörf verður á slíku.Von er á austanstórhríð og hvassviðri. Appelsínugul viðvörun verður í gildi á Suðvesturlandi, Suður- og Suðausturlandi auk hálendisins en gul viðvörun annars staðar.

Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og á Suðurlandi í fyrramálið

Vegir verða á óvissustigi og gætu lokast, meðal annars þeir sem liggja að höfuðborgarsvæðinu. Von er á mörgum á ferðinni heim eftir páskafrí og er fólk hvatt til að fylgjast vel með og leggja annaðhvort snemma af stað eða bíða veðrið af sér.Þegar er búið að ákveða að loka Holtavörðuheiði klukkan tólf á hádegi á morgun. Ekki er talið líklegt að hún verði opnuð aftur fyrr en á þriðjudag. Á Suðurlandi hefur verið ákveðið að loka milli Markarfljóts og Kirkjubæjarklausturs, og áfram í Öræfasveit, strax í fyrramálið.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More