Lögreglumenn grunaðir um að flýja vettvang skotárásar í Kyiv
0
World

Lögreglumenn grunaðir um að flýja vettvang skotárásar í Kyiv

April 19, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

Tveimur úkraínskum lögreglumönnum hefur verið vikið tímabundið úr starfi vegna gruns um að þeir hafi flúið vettvang skotárásar í höfuðborginni Kyiv í gær. Sex voru skotnir til bana og fimmtán til viðbótar eru særðir, þar af eru níu enn á sjúkrahúsi.Lögreglumenn felldu árásarmanninn á vettvangi.Úkraínskir fjölmiðlar birtu myndskeið þar sem einkennisklæddir lögreglumenn virtust taka til fótanna þegar skothvellir glumdu.Igor Klymenko innanríkisráðherra Úkraínu segir framferði þeirra vera til skammar.Svívirðileg og ósæmileg hegðun.

Lögreglumenn grunaðir um að flýja vettvang skotárásar í Kyiv

Þetta er öllu kerfinu til skammar,“ sagði Klymenko í færslu á Telegram. Hann hvatti fólk til að dæma ekki lögreglustéttina í heild út frá gjörðum tveggja starfsmanna.Árásarmaðurinn var 58 ára karlmaður frá Moskvu. Tilefni árásarinnar liggur ekki fyrir en Ruslan Kravchenko ríkissaksóknari segir að hún sé rannsökuð sem hryðjuverkaárás.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More