Lögregla skaut mann sem hafði verið eftirlýstur í sjö mánuði
World

Lögregla skaut mann sem hafði verið eftirlýstur í sjö mánuði

March 30, 2026
RÚV
Scroll

Maður sem hafði verið eftirlýstur í sjö mánuði fannst og var skotinn til bana af lögreglu í Viktoríu-fylki í Ástralíu í gær. Maðurinn, Dezi Freeman, var eftirlýstur fyrir morð á tveimur lögreglumönnum.Lögreglumennirnir tveir voru við húsleit á heimili mannsins í Porepunkah í ágúst þegar Dezi skaut þá báða til bana. Þá særðist einn lögreglumaður í árásinni.

Lögregla skaut mann sem hafði verið eftirlýstur í sjö mánuði

Dezi náði að flýja af vettvangi og inn í þjóðgarð þar sem mikið er af námugöngum sem ekki eru lengur í notkun. Lögreglan lýsti eftir honum og bauð eina milljón ástralskra dollara, eða rúmlega 86 milljónir íslenskra króna, fyrir upplýsingar sem leitt gætu til handtöku hans.Síðan hafa hundruð lögreglumanna leitað Dezi vítt og breitt um þétt kjarrlendi Viktoríufylkis. Hann fannst að lokum í hjólhýsi sínu í Tholongolong sem er á afskekktum stað í fylkinu. Hann neitaði að gefast upp fyrir lögreglunni og til átaka kom milli hans og lögreglumanna sem enduðu með því að lögreglan skaut manninn.Dezi hefur verið lýst sem samsæriskenningarmanni og félaga í hreyfingu sem kennir sig við fullvalda ríkisborgara sem telur sig ekki þurfa að fara að lögum.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More