0
Lögregla kölluð út vegna manns sem synti í Ölfusá
April 21, 2026
Posted 2 hours ago by
Lögreglan á Suðurlandi brást í dag við tilkynningu um mann sem synti í Ölfusá við Ölfusárbrúna nærri Selfossi.Íris Edda Heimisdóttir, aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurlandi, segir að maðurinn hafi ekki verið lengi á sundi og hafi skilað sér upp á bakka árinnar stuttu eftir að lögregla mætti á vettvang. Lögregla ræddi við sundmanninn að sundinu loknu.Þetta er hættulegt og bagalegt.
Þetta er mjög straumhörð á og hún skilar illa því sem hún tekur,“ segir Íris Edda en lögreglan mælir alls ekki með því að lagst sé til sunds í ánni.Ekki reyndist þörf á að kalla sjúkrabíl eða annað viðbragð á vettvang.Sjá má manninn á sundi í stuttu myndbandi sem sent var fréttastofu hér fyrir neðan.Lögreglan á Suðurlandi brást í dag við tilkynningu um sundmann í Ölfusá við Ölfusárbrúnna nærri Selfossi. Manninum varð ekki meint af en lögregla ræddi við hann að loknu sundinu þar sem áin er mjög straumhörð og hættulegt að synda í henni.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.