Ljósmynd ársins – „Aðskilin af ICE“
0
World

Ljósmynd ársins – „Aðskilin af ICE“

April 23, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

Dætur manns sem var handtekinn af bandarísku innflytjendalögreglunni ICE í New York í fyrra sjást á ljósmynd ársins hjá samtökunum World Press Photo. Ljósmyndarinn er Carol Guzy sem er þekkt fyrir áhrifamiklar ljósmyndir frá svæðum þar sem er neyð eða átök.Myndin ber yfirskriftina Aðskilin af ICE“ eða Separated by ICE“. Á henni sjást ungar dætur Luis, manns frá Ekvador, ríghalda í föður sinn meðan alríkisfulltrúar handtaka hann.World Press Photo segir ljósmyndina fanga raunveruleika margra í Bandaríkjunum sem óttast að vera handtekin, send úr landi eða verða aðskilin frá ástvinum sínum af völdum harðrar innflytjendastefnu.Tvær aðrar myndir komu til greina að mati dómnefndarinnar.

Ljósmynd ársins – „Aðskilin af ICE“

Önnur þeirra sýnir konur sem tilheyra frumbyggjasamfélagi Maya Achi í Gvatemala. Þær eru meðal þeirra sem stigu fram árið 2011 og greindu frá kerfisbundnu kynferðisofbeldi sem þær voru beittar í 36 ára borgarastríði í Gvatemala á 20. öldinni.Ljósmyndarinn Victor J. Blue tók myndina sama dag og þrír fyrrverandi stjórnarhermenn voru dæmdir í 40 ára fangelsi fyrir nauðgun og glæpi gegn mannkyni.Hin myndin sem kom til greina sýnir Palestínumenn hópast á og við flutningabíl með hjálpargögnum á Gaza. Hjálparsamtök hafa lýst þungum áhyggjum af því að aðeins brot af þeim hjálpargögnum sem þörf er á hafi borist inn á Gaza frá því að stríð Ísraela og Hamas braust út í október 2023.Ljósmyndarinn er Saber Nuraldin. Hann fæddist á Gaza og hefur fangað daglegt líf þar á filmu síðan 1997.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More