0
Leit frestað þar til frekari vísbendingar koma fram
April 22, 2026
Posted 3 hours ago by
Leit að erlendum ferðamanni sem sást síðast til í nágrenni við Háafoss í Þjórsárdal hefur verið frestað. Leitin hefur ekki enn borið árangur en hún hefur staðið yfir í um sólarhring. Lögreglan á Suðurlandi hefur frestað leitinni þar til fleiri vísbendingar hafa komið fram. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Facebook.Ferðamaðurinn skilaði sér ekki á gististað sinn fyrr í vikunni og var því haft samband við lögreglu.
Eftir eftirgrennslan lögreglu var kallað eftir aðstoð björgunarsveita og Landhelgisgæslu. Leitarsvæðið við Háafoss er krefjandi en í tilkynningu Landsbjargar segir að mikill krapi og drulla séu á svæðinu. Leitin hefur enn ekki borið árangur.Landsbjörg
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.