0
Lego og gervigreind í áróðri Írana sem nær til milljóna
April 14, 2026
Posted 4 hours ago by
Stríð eru háð víðar en á vígvellinum. Síðan herir Bandaríkjanna og Ísraels hófu árásir á Íran hefur íranska fyrirtækið Explosive Media framleitt og birt myndbönd sem í fljótu bragði minna á Lego-kvikmynd. Svo er þó ekki því þetta eru áróðursmyndbönd sem fyrirtækið framleiðir fyrir stjórnvöld í Íran.Efnistökin eru af ýmsu tagi en oftast fjalla myndböndin um Donald Trump forseta Bandaríkjanna.
Hann er sýndur sem gamall og úr tengslum við raunveruleikann.Í nýjasta myndbandinu sem var birt í gær má sjá Trump skipuleggja lokun á umferð skipa um Hormússund á leið til og frá Íran. Þar er almenningur í Bandaríkjunum sýndur örvæntingarfullur yfir hækkandi vöruverði og Trump að svitna yfir hækkandi olíuverði. Undir hljómar tónlist með enskum texta.Milljónir hafa horft á myndbönd frá Íran þar sem gert er stólpagrín að stjórnvöldum í Bandaríkjunum og Ísrael. Gervigreind gefur stjórnvöldum einræðisríkja meiri möguleika en áður til að ná til Vesturlandabúa, segir sérfræðingur.Það er ekkert nýtt að ríki beiti áróðri í stríði en með aðstoð tækninnar geta þau dreift honum mun víðar en áður. Emma Briant, sérfræðingur í stríðsáróðri og dósent við Notre Dame-háskólann í Indiana í Bandaríkjunum, segir við BBC að með tilkomu gervigreindar geti stjórnvöld í Íran náð betur til almennings á Vesturlöndum en nokkurn tíma áður.Við gerð myndbandanna sé notuð tækni sem hafi verið þróuð á Vesturlöndum með gögnum sem fyrirfinnist þar. Því sé þessi tækni kjörin til að gera áróðursefni sem menningarlega höfði til fólks á Vesturlöndum. Þetta sé tækni sem einræðisríki, sem vilji beina áróðri sínum til Vesturlanda, hafi ekki haft áður.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.