Leggja til stórfelldar skattalækkanir
March 31, 2026
RÚV
Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins kynnti í dag tillögur flokksins í efnahagsmálum. Meðal þess sem lagt er til er sala ríkiseigna fyrir 680 milljarða og skattalækkanir upp á 140 milljarða.Guðrún kynnti tillögurnar ásamt Jens Garðari Helgasyni, varaformanni, á blaðamannafundi í Valhöll eftir hádegi. Tillögurnar byggja á stjórnmálaályktun flokksráðsfundar sem haldinn var fyrr í mánuðinum og er markmið þeirra sagt að auka ráðstöfunartekjur heimila, bæta samkeppnishæfni á alþjóðavísu, draga úr umsvifum ríkisins og lækka skuldir.Skattalækkanir upp á 140 milljarðaFlokkurinn metur skattalækkunartillögur sínar á 140 milljarða króna.
Lagt er til eitt 35 prósenta skattþrep og hækkun persónuafsláttar upp í 100 þúsund á mánuði. Skattþrepin í dag eru þrjú. Þeir sem eru með tekjur undir 472 þúsund á mánuði greiða 31,49 prósent í tekjuskatt, þeir sem eru með tekjur á bilinu 472 til 1.325 þúsund greiða 37,99 prósent og 46,29 prósent tekjuskattur er á tekjur yfir 1.325 þúsund. Persónuafsláttur í dag er um 72.500 krónur.Samkvæmt útreikningum flokksins aukast ráðstöfunartekjur einstaklings um 280 þúsund krónur á ári við þessar breytingar.Lagt er til að fjármagnstekjuskattur, sem lagður er á arðgreiðslur, söluhagnað, leigutekjur, höfundaréttargreiðslur og vaxtatekjur, lækki úr 22 í 20 prósent. Þá er lagt til afnám erfðafjárskatts.Flokkurinn vill afnema vörugjöld á ökutæki, kolefnisgjald, útvarpsgjald og innviðagjald á skemmtiferðaskip og þá er lögð til 5 prósenta lækkun á krónutölugjöldum, svo sem kílómetragjaldi, bifreiðagjöldum, áfengisgjaldi, tóbaksgjaldi og níkótíngjaldi. Til viðbótar er lagt til að áfengisgjald verði lækkað um fimm prósent umfram lækkun krónutölugjalda.100 prósenta skattaafsláttur yrði á keyptum hlutabréfum og hlutdeildarskírteinum upp að 550 þúsund fyrir einstakling.Hagrætt fyrir 160 milljarðaFlokkurinn metur hagræðingartillögur sínar upp á 160 milljarða. Þeirra á meðal er afnám framlaga til stjórnmálaflokka sem í fyrra voru 605 milljónir, afnám styrkja til fjölmiðla sem voru 550 milljónir í fyrra og afnám útvarpsgjalds og hagræðing hjá RÚV, en framlög til RÚV í fyrra voru um 5 og hálfur milljarður.Nýta á gervigreindina til hagræðingar og jafnvel fækka starfsfólki en flokkurinn metur tillögu um að afnema sérrettindi opinberra starfsmanna á tugi milljarða króna.Þá eru lagðar til sameiningar stofnana, svo sem að sameina Neytendastofu, Fjölmiðlanefnd og Samkeppniseftirlitið í eina stofnun.Leggja á niður Umboðsmann skuldara, Matvælasjóð og gæða- og eftirlitsnefnd velferðarmála sem og að skera verulega niður hjá Hagstofunni, Landi og skógi, Vinnumálastofnun og fleiri stofnunum. Ekki er settur verðmiði á þessar aðgerðir.Eignir seldar fyrir 680 milljarðaLoks leggur flokkurinn til sölu ríkiseigna upp á 680 milljarða króna og yrði söluandvirðið nýtt í að greiða niður skuldir ríkisins. Það myndi lækka vaxtabyrði ríkissjóðs um 45 milljarða á ári.Meðal eigna sem flokkurinn vill selja eru Nýsköpunarsjóðurinn Kría, Hviða fjárfestingarfélag, Sparisjóður Austurlands, Íslandspóstur, Endurvinnslan og Landsbankinn.Þá er lagt til að ríkið selji minnihluta í ISAVIA, Landsneti og Rarik til stofnanafjárfesta á borð við lífeyrissjóði. Loks er lagt til að selja fasteignir og ríkisjarðir, en virði fasteigna og jarða í eigu ríkisins er 440 milljarðar króna.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.