Advertisement
Leggja til að Pósturinn verði seldur
World

Leggja til að Pósturinn verði seldur

April 1, 2026
RÚV
Scroll

Sex þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um að ríkið selji Íslandspóst. Þingmennirnir segja að með því megi auka samkeppni í póstþjónustu, bæta þjónustu við viðskiptavini og stuðla að fjárfestingum til að efla rekstur og þjónustu.Bryndís Haraldsdóttir er fyrsti flutningsmaður tillögunnar og undir hana rita fimm samflokksmenn hennar.

Leggja til að Pósturinn verði seldur

Í greinargerð segja þau að Íslandspóstur hafi tapað 252 milljónum á síðasta ári og yfir milljarði þegar tekið sé tillit til 757 milljóna króna framlags úr ríkissjóði til að tryggja alþjónustu Póstsins við landsmenn. Einnig er vísað til spurninga stjórnarmanna í ársskýrslu um hvort ríkið eigi að eiga Íslandspóst áfram.Þingmennirnir leggja einnig fram tillögu um að ráðist verði í markaðsrannsókn og útboð á póstmarkaði. Þetta er í fjórða skipti sem sú tillaga er flutt. Þingmennirnir vilja að kannað verði hvaða þáttum alþjónustu Íslandspósts sé sinnt á viðskiptalegum forsendum í dag. Þeir vilja líka kanna hvort önnur fyrirtæki en Íslandspóstur ohf. myndu veita lágmarkspóstþjónustu á þeim fáu stöðum þar sem samkeppni er ekki til staðar ef þau þyrftu ekki að keppa við niðurgreiddan rekstur“.Íslandspóstur er eitt þeirra ríkisfyrirtækja sem Sjálfstæðisflokkurinn vill selja samkvæmt efnahagstillögum sem flokkurinn kynnti í gær. Meðal annarra má nefna Landsbankann, Endurvinnsluna og hluti í Isavia, Landsneti og Rarik.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More