0
Laus úr haldi eftir að hafa ráðist á kvenkyns leigubílstjóra
April 18, 2026
Posted 2 hours ago by
Maður á fertugsaldri sem réðst á kvenkyns leigubílstjóra í Hafnarfirði í nótt er laus úr haldi lögreglu. Þetta staðfestir Unnar Már Ástþórsson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en hann segir nokkur vitni hafa verið að árásinni.Maðurinn var handtekinn í nótt grunaður um líkamsárás og var vistaður í fangaklefa þar til lögregla tók skýrslu af honum í morgun.
Leigubílstjórinn er kona á fertugsaldri og er af erlendu bergi brotin en maðurinn er Íslendingur.Unnar Már segist ekki vita hvert ástand konunnar sé eftir árásina. Hún hafi ekki verið flutt til aðhlynningar af lögreglu eða sjúkraflutningamönnum heldur ætlað að leita sér læknisaðstoðar upp á eigin spýtur.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.