Laus undan þrýstingi uglunnar eftir þúsund daga í röð
March 31, 2026
RÚV
Steinunn Lóa Lárusdóttir, leiklistarnemi við Listaháskóla Íslands, hélt veislu í Bíó Paradís um helgina til að fagna því að henni hefði tekist að gera æfingar í tungumálakennsluforritinu Duolingo í eitt þúsund daga í röð. Í partíinu var grænt þema, Steinunn bakaði köku í tilefni dagsins og leyfði síðan gestum að fylgjast með þegar hún kláraði þúsundustu æfinguna.
Hvernig virkar Duolingo? Á Duolingo geta notendur æft sig í tungumáli að eigin vali með daglegum æfingum. Hægt er að safna stigum fyrir hverja æfingu og notendur halda eins konar runu (e. streak) fyrir að gera æfingu á hverjum degi. Duolingo-uglan er lukkudýr forritsins og minnir notendur reglulega á að missa ekki dampinn.Tímbært að leyfa uglunni að fljúga úr hreiðrinuSteinunn er áhugakona um tungumál og talar meðal annars reiprennandi spænsku. Hana langaði að læra fleiri tungumál og byrjaði að nota smáforritið til þess að læra frönsku áður en hún fór til Frakklands að vinna sem au pair.Þegar heim var komið sneri hún sér að þýsku en fann stuttu seinna að hún hafði ekki nógu mikinn áhuga á tungumálinu til að halda áfram. Þegar þar að kom var þó þúsund daga takmarkið í augnsýn.Þá var ég komin upp í níu hundruð daga þannig að ég ákvað að finna eitthvað sem ég myndi hafa aðeins meira gaman að til að klára upp í þúsund og þá skipti ég yfir í pólsku,“ segir Steinunn.Um leið og ég vissi að ég ætlaði að klára upp í þúsund ákvað ég að hætta og halda partí til að fagna þúsund dögum, bara til þess að leyfa uglunni að fljúga úr hreiðrinu,“ bætir hún við létt í bragði.Leiklistarnemi hélt veislu til að fagna eitt þúsund dögum í röð í tungumálakennsluforritinu Duolingo. Hún gerði sína síðustu æfingu fyrir framan vini og vandamenn á laugardag og hefur nú sagt skilið við ugluna umdeildu.Tæp þrjú ár af daglegum æfingumSteinunn kláraði síðustu æfinguna sína á Duolingo fyrir framan vini og vandamenn við mikinn fögnuð viðstaddra. Auk þess bakaði hún köku með mynd af uglunni sem gestir veislunnar gæddu sér á.Ég var smá stressuð um að gera mistök fyrir framan alla því ég er ekki mjög góð í pólsku en svo sýndi ég sjálfri mér mildi, gerði einhver ein mistök og það var bara allt í lagi,“ segir Steinunn.Veislan var vel heppnuð að hennar mati. Steinunn segir hana marka kaflaskil þar sem hún hyggist ekki halda áfram að nota smáforritið. Uglan geti verið ágeng og stundum hafi reynst erfitt að halda uppi rununni.Ég var oft að gera Duolingo rétt fyrir miðnætti. Til dæmis á Retro Stefson tónleikum í fyrra og oft þegar ég var kannski að horfa á bíómynd með kærastanum mínum þurfti ég að pása klukkan fimm mínútur í tólf til að gera æfingu fyrir miðnætti. Þetta var orðið frekar þreytandi og það var alveg komið gott af þessu.“Skemmtilegra að læra tungumál með því að tala við fólkSteinunn segist enn þá vera að venjast því að fá ekki áminningar frá uglunni og því að þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að finna tíma til að gera æfingar á hverjum degi.Ég þakka uglunni fyrir góðar stundir og mikinn lærdóm,“ segir Steinunn.Ég held að næst þegar ég vil læra nýtt tungumál muni ég fara aðrar leiðir. Mér finnst skemmtilegast að læra tungumál með því að tala við fólk sem talar tungumálið og ég held að ég sé ágæt í bili.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.