Lars Løkke Rasmussen setur afarkosti
April 10, 2026
RÚV
Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi danska stjórnmálaflokksins Moderaterne, ætlar ekki að halda áfram tilraunum til myndunar næstu ríkisstjórnar Danmerkur nema leiðtogum flokkanna Venstre og Konservative verði boðið að taka þátt.Eftir kosningar á dögunum fékk Mette Frederiksen, leiðtogi Jafnaðarmanna, stjórnarmyndunarumboð. Hún hefur átt í viðræðum við flokka á miðjunni og til vinstri, þar á meðal flokk Rasmussen, Moderaterne.
Flokkur hans er í lykilstöðu eftir kosningarnar. Hann telur vænlegra að Frederiksen reyni að mynda stjórn til hægri með Venstre og Konservative og ætlar því ekki að reyna lengur að mynda stjórn með vinstriflokkunum.Leiðtogi Venstre, sem er hægriflokkur, Troels Lund Poulsen, sendi Rasmussen ákall í morgun um að Vestre og Moderaterne gætu sameinast um stefnu í efnahagsmálum. DR, Danska ríkisútvarpið, segir það ástæðu þess að leiðtogi Moderaterne hafi nú sett þessa kröfu í viðræðunum.Stjórnarmyndunarviðræður Moderaterne og vinstri flokkanna hafa gengið hægt. Síðasti fundur þeirra var á þriðjudagskvöld. Eftir þann fund sagði Rasmussen að það væri góður andi í viðræðunum en að samningar gengju hægt. Hann sagðist deila metnaði vinstriflokkanna til að bæta drykkjarvatn en að fjármagn þurfi að vera til staðar.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.