0
Land Rover 2007 verður að rafmagnsbíl
April 17, 2026
Posted 2 hours ago by
Þátttakendur í námskeiði Iðunnar hafa síðustu daga unnið hörðum höndum að því að breyta fjallajeppa af gerðinni Land Rover Defender 110, árgerð 2007, í rafmagnsbíl. Til þess var notast við upprunalega íhluti úr Nissan Leaf af árgerð 2023.Námskeiðið er haldið í samstarfi við fyrirtækið Electric Classic cars og Ísak 4x4 Rental og var markmið þess að bíllinn yrði aksturshæfur að lokum.Þeir sem tóku þátt í námskeiðinu eru að mestu leyti bifvélavirkjar en einnig þeir sem hafa áhuga á jeppaferðum og rafmagni.Þetta sameinar svo marga hópa,“ segir Sigurður Svavar Indriðason, leiðtogi bílgreina hjá Iðan fræðisetri.Við erum með jeppa, eldri bíl og rafmagnið þannig að þetta sameinar mjög breiðan hóp og þetta verkefni má hugsa þannig að koma fólki saman og ræða málin.
Hvort þetta virki, sérstaklega í svona aðstæðum eins og við erum með,“ segir Sigurður.Bíllinn, sem er í eigu ferðaþjónustufyrirtækisins Ísak 4x4 rental, verður svo tekinn til prufu í raunverulegum íslenskum aðstæðum.Síðustu daga hefur hópur nema hjá Iðan unnið hörðum höndum að því að breyta Land Rover Defender 2007 í rafmagnsbíl. Markmiðið er að vekja upp umræðu um notagildi eldri bíla og sameina marga mismunandi hópa bílaáhugafólks.Vildi leita út fyrir landsteinana að þekkinguHugmyndin var upprunalega sú að fá til landsins sérfræðinga sem hefðu þekkingu á því að breyta eldri bílum í rafmagnsbíla.Mér datt í hug að fara aðeins út fyrir landssteinana og sækja þekkingu,“ segir Sigurður sem hafði samband við Richard Morgan, stofnanda og framkvæmdastjóra fyrirtækisins Classic Electric Cars. Upprunalega var áætlunin að Richard myndi miðla reynslu sinni til þátttakenda á námskeiðinu en hann hefur um 10 ára reynslu af því að breyta eldri bílum í rafbíla.Síðan bað hann okkur, fyrst við vorum hér, að breyta Land Rovernum og ég hugsaði já, við skulum gera það,“ segir Richard.Síðustu daga hefur hópur nema hjá Iðan unnið hörðum höndum að því að breyta Land Rover Defender 2007 í rafmagnsbíl. Markmiðið er að vekja upp umræðu um notagildi eldri bíla og sameina marga mismunandi hópa bílaáhugafólks. Hvað er Iðan? Iðan sinnir símenntun starfsmanna í bílgreinum, bygginga- og mannvirkjagreinum, málm- og véltæknigreinum, prent- og miðlunargreinum og matvæla- og veitingagreinum. Hlutverk Iðunnar er fyrst og fremst að bæta hæfni fyrirtækja og starfsmanna í iðnaði.Sigurður segir að reynt hafi verið að gera verkið auðvelt þar sem námskeiðið stóð í þrjá daga. Ómögulegt hefði verið að gera það frá grunni á svo stuttum tíma.Ég held að Richard hafi verið 9 mánuði að breyta sínum fyrsta bíl,“ segir Sigurður. Þeir eru búnir að forhanna mikið af festingum og búnaði sem þarf til að festa íhlutina.“Ástæðan fyrir því að Richard breytti eldri bílum í rafmagnsbíla var sú að hann vildi sameina vistvæna eiginleika rafmagnsins við fallega hönnun eldri bíla.Ég vildi keyra mína gömlu bíla í daglegum akstri og njóta þeirra á hverjum degi,“ segir Richard sem taldi að besta leiðin til þess væri að breyta þeim í rafmagnsbíla. Hann segir ferlið flókið og einfalt á sama tíma.Það getur verið auðvelt þegar þú ert að breyta bílum þar sem við höfum hannað hlutina nú þegar,“ segir Richard en fyrirtækið hefur breytt um 100 bílum í rafmagnsbíla.En fyrir bíla sem við höfum aldrei breytt getur þetta verið frekar flókið,“ segir hann.Þetta er langt ferli, sérstaklega þegar breyta á bílnum í samræmi við þá háu gæða- og öryggisstaðla sem við styðjumst við, segir Richard.Fyrirtækið framleiðir pakka sem hægt er koma auðveldlega fyrir í þeim og nefnir til að mynda tegundir eins og Porsche 911, Volkswagen bjöllur og aðrar tegundir af Land Rover. Richard hefur áður breytt mörgum tegundum af Land Rover, fyrst árið 2017.Þá setti fyrirtækið met þegar það framleiddi hraðasta Land Rover Defender bílinn sem fer frá 0 upp í 100 kílómetra hraða á einungis 3,4 sekúndum.Land Roverinn sem þeir breyttu að þessu sinni sé þó með langstærstu dekk nokkurs bíls sem fyrirtækið hefur komið að. Bíllinn sem unnið var að í Iðunni er prufuútgáfa og því með minni rafhlöðu og er gert ráð fyrir að drægni hans sé um 150 kílómetrar.Richard segist spenntur að sjá hvernig bíllinn stendur sig í íslenskum aðstæðum.Ég vil sjá þennan bíl í fjöllunum að spýta snjó aftur fyrir sig og vonandi með mig undir stýri,“ segir Richard.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.