Kýrin Branda bar þremur kálfum
World

Kýrin Branda bar þremur kálfum

April 5, 2026
RÚV
Scroll

Hún er engin venjuleg kýr hún Branda á kúabúi undir Eyjafjöllum því hún var að bera þremur kálfum, tveimur nautum og einni kvígu. Allir kálfarnir hafa fengið nöfn sem tengjast páskunum.Á Stóru-Mörk búa bændurnir Aðalbjörg Ásgeirsdóttir og Eyvindur Ágústsson en þau eru með um 120 kýr og tvo mjólkurróbóta í fjósinu. Búskapurinn gengur vel en þau hafa til dæmis verið tvisvar sinnum með afurðahæsta kúabú landsins, sem er glæsilegur árangur.En þau hafa aldrei átt kú áður, sem ber þremur kálfum en það gerði hún Branda, sem kom með þrjá spræka kálfa í heiminn á föstudaginn langa en tíðni þríbura hjá íslenskum kúm er 1 af hverjum 20.000 burðum.Þetta er mjög merkilegt eða hvað?Já, það er ekkert sérstaklega algengt að það komi þríkelfingar og alls ekki lifandi og heilbrigðir, þannig að þetta er bara gaman,” segir Aðalbjörg.Hvernig gekk Bröndu að koma kálfunum frá sér?Bara mjög vel.

Kýrin Branda bar þremur kálfum

Þetta var eins og að taka á móti lömbum frekar en kálfum en sem betur fer vorum við heima því annars hefðum við aldrei trúað því að hún ætti þá alla. Við vorum búin að taka á móti tveimur og ætluðum bara að fara inn í kaffi, okkur brá nú aðeins þegar sá þriðji kom, nei, nei, þetta var bara gaman,” segir Aðalbjörg.Kýrin Branda á Stóru-Mörk bar á dögunum þremur kálfum. Kálfarnir hafa fengið nöfn sem tengjast páskunum. Tíðni þríbura hjá íslenskum kúm er 1 af hverjum 20.000 burðum.Og fá þeir allir að lifa?Já, já, þetta er svo skemmtilegt af því að þeir eru allir heilbrigðir.”Kálfarnir eru duglegir að drekka mjólk úr stórum pela og mamma þeirra fylgist vel með þeim og passar vel upp á þríkelfingana sína en sjálf er hún tvíkelfingur.Og heimasætan á bænum er búin að ákveða með pabba sínum og mömmu hvað kálfarnir eiga að heita.Þessi heitir Sanbó, þetta er Góa og svo er það Nói Síríus. Þeir heita þessum nöfnum því þeir fæddust um páskana,” segir Ragnheiður Elín Eyvindsdóttir, 10 ára.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More