Kröfur til meðferðarheimila óljósar
0
World

Kröfur til meðferðarheimila óljósar

April 22, 2026
Scroll

Posted 1 hour ago by

Þær kröfur sem gerðar eru til þjónustu meðferðarheimilanna eru að miklu leyti óljósar í núverandi lagaumhverfi. Kvörtunar- og kæruleiðir vegna beitingar þvingunar eru einnig óljósar.Þetta kemur fram í skýrslu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) vegna frumkvæðisathugunar á meðferðarheimilum Barna- og fjölskyldustofu.Mikilvægt er að reglugerð um vistunarúrræði verði gefin út samhliða gildistöku nýrra laga um barnavernd svo ljóst sé hvaða kröfur séu gerðar til starfseminnar, segir í skýrslunni.Meðferðarþjónusta verulega skert frá 2024Þar kemur fram að framboð á þjónustu meðferðarheimila hafi verið verulega skert frá lokun Lækjarbakka vorið 2024 og enn verra eftir bruna á Stuðlum haustið 2024.

Kröfur til meðferðarheimila óljósar

Hefðbundin framhaldsmeðferð fyrir drengi hafi fallið niður í næstum tvö ár vegna þessa.Þegar athugun GEV hófst voru eingöngu tvö meðferðarheimili í rekstri, Stuðlar og Bjargey. Grunnmeðferðardeildin Blönduhlíð var opnuð í febrúar 2025, stuðningsheimili tók til starfa í september 2025 og Lækjarbakki var opnaður á ný í mars 2026.GEV bendir á að við þróun úrræða þurfi að gæta að því að draga úr hættu á smitáhrifum milli barna með ólíkan vanda. Viðeigandi úrræði þurfi fyrir börn með alvarlegan fíknivanda sem þurfi líka heilbrigðisþjónustu. Þá þurfi að taka betur tillit til þarfa barna með geðraskanir og einhverfu.Þörf á fjölbreyttari úrræðum og innra eftirlitiÞá telur GEV þörf á fjölbreyttari úrræðum og samstarfi milli kerfa barnaverndarþjónustu og heilbrigðisþjónustu. Í dag sé einungis gert ráð fyrir því að meðferðarheimilin séu félagsleg úrræði en ekki að þau veiti heilbrigðisþjónustu.Gerð er athugasemd við að ekki hafi farið fram markvisst mat á árangri meðferðarheimilanna til að auka gæði og stuðla að umbótum. Bæta þurfi innra eftirlit Barna- og fjölskyldustofu til að tryggja að verklag sé í samræmi við kröfur og að starfsfólk framfylgi því.Sum börn vildu meiri stuðning vegna vímuefnavandaGæta þurfi að því að börn hafi ekki aðgang að hlutum sem þeim er óheimilt að hafa á borð við fíkniefni og kveikjara, en dæmi séu um að þau hafi komist höndum yfir slíka hluti.Flest börn sem GEV ræddi við sögðu sér líða vel á meðferðarheimilinu en kvörtuðu mörg undan háttatímum, nikótín- og símanotkun, að fá ekki að vera í samskiptum við vini sína og að fá ekki heimfararleyfi.Sum barnanna hefðu viljað meiri stuðning vegna vímuefnavanda. Öll sögðust þau eiga í góðum samskiptum við starfsfólk og að vel væri komið fram við þau.Óskað hefur verið eftir úrbótaáætlun frá Barna- og fjölskyldustofu fyrir 1. júní 2026 og skal úrbótum lokið fyrir 1. nóvember 2026.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More