0
Kosningaáherslur Sjálfstæðisflokksins kynntar
April 22, 2026
Posted 2 hours ago by
Kosningaáherslur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík voru kynntar síðdegis í dag í Bragganum í Nauthólsvík. Hildur Björnsdóttir oddviti segir flokkinn leggja áherslu á allt sem hægt sé að framkvæma strax. Áherslurnar bera yfirskriftina Strax-D.Við ætlum að leggja áherslu á lausnir í leikskóla- og daggæslumálum sem við getum innleitt strax og það verða fjölbreyttar lausnir eins og daggæslur á vinnustað, uppbygging húsnæðis í samvinnu við einkaaðila og heimgreiðslur fyrir þá sem það vilja,“ segir hún.Við ætlum að blása til stórsóknar í grunnskólamálum og ráðast í það sem hægt er að gera strax í samgöngumálum eins og snjallar ljósastýringar, Miklubrautargöng strax og gatnamótin við Sprengisand svo eitthvað sé nefnt,“ segir Hildur.Á fundinum nefndi Hildur að kannanir sýndu að 73 borgarbúa vildu breytingar og ákallið væri því skýrt.
Þá sagði hún jafnframt að kallað væri eftir því að umræðan færist frá almennum yfirlýsingum og yfir í skýrar lausnir, settar fram á mannamáli.Loforðalistinn verði einkunnarspjald flokksinsKynnt var málefnaskrá flokksins og segir Hildur hana vera afurð margra vikna vinnu flokksmanna og frambjóðenda. Loforð flokksins séu tímasett og raunhæf og lögð áhersla á að engu sé lofað nema staðið sé við það. Þannig verði loforðalisti flokksins einkunnarspjald hans eftir 4 ár.Við leggjum áherslu á þessi verkefni sem hægt er að klára strax á næsta kjörtímabili og við sundurliðum áherslurnar okkar í þrjá verkefnalista, hvað við ætlum að gera 100 dagana, fyrstu 12 mánuðina og svo næstu fjögur árin,“ segir HildurEn við erum auðvitað líka að vinna að stóru framtíðarsýninni og þar er margt sem hægt er að gera og leggja grunn að strax á næsta kjörtímabili.“Flokkurinn mælist með mest fylgi í borginniFlokkurinn mældist með mest fylgi í borginni í síðasta þjóðarpúlsi Gallup eða 27,6. Hann fengi þannig sjö fulltrúa. Hildur segir að flokkurinn finni fyrir miklum meðbyr.Við vonumst eftir góðum árangri í kosningunum og erum svo til í samstarf með þeim flokkum sem vilja vinna að okkar áherslum,“ segir Hildur sem tekur fram að flokkurinn gangi ávallt óbundinn til kosninga og útiloki því ekki meirihlutaviðræður við neina flokka.Hún telur að flokkurinn eigi meira inni síðan í síðustu könnun.Við ætlum okkur auðvitað meira og við erum bara í stórsókn og erum spennt fyrir næstu vikum og vonum að borgarbúar treysti okkur fyrir þessum verkefnum sem bíða,“ segir Hildur.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.