World
Kortleggja heilsufar danskra kvenna
April 7, 2026
RÚV
Scroll
300.000 danskar konur fá á næstu vikum boð í heilsufarskönnun Árósarháskóla. Markmiðið er að kortleggja heilsufar kvenna og verður könnunin sú umfangsmesta í Danmörku til þessa.Könnuninni verður beint að konum á aldrinum 35 til 60 ára. Spurningar verða í 11 mismunandi flokkum sem fjalla um þætti daglegs lífs, líkt og svefn- og lífsstílsvenjur, og fá þátttakendur annan spurningalista fimm árum eftir að þeir svara þeim fyrsta.Stór hluti heilsufarsrannsókna byggir á gögnum um karla, segir í tilkynningu forsvarsmanna könnunarinnar.
Niðurstöðunum sé ætlað að tryggja bætta þjónustu við konur í danska heilbrigðiskerfinu.Pexels / cottonbro studio
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.
Iceland
Bias: lean left