Kjarnaboranir Eyjaganga hefjast um helgina
0
World

Kjarnaboranir Eyjaganga hefjast um helgina

April 17, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

Hafist verður handa við kjarnaboranir á vegum Eyjaganga ehf. í Vestmannaeyjum um helgina. Þær eru upphaf umfangsmikilla rannsókna á möguleika vegtengingar milli eyjanna og meginlandsins.Eyjafréttir greina frá þessu og segja markmiðið að afla þekkingar á jarðlögum og undirstöðu þeirrar leiðar sem fyrirhuguð er. Borað verður á tveimur stöðum, á Eiðinu á Heimaey og uppi á Landeyjasandi á Suðurlandi við bæinn Kross.Haft er eftir Haraldi Pálssyni, framkvæmdastjóra Eyjaganga, að styrkleiki bergsins verði rannsakaður og eins hve mikið vatn lekur í gegnum það.

Kjarnaboranir Eyjaganga hefjast um helgina

Vitað sé að mikill leki er í efstu metrunum, en vonir standi til að úr því dragi neðar.Síður þurfi að grípa til umfangsmikilla styrkinga í fyrirhuguðum göngum sé þéttleiki bergsins mikill. Einnig verði gerðar hljóðendurvarpsmælingar af hafsbotninum, sem ásamt kjarnaborunum séu lykilþættir við að meta hversu fýsileg veglagningin sé.Fyrsta áfanga rannsóknarinnar á að ljúka í júlíbyrjun, þá munu jarð- og verkfræðingar taka til við að greina gögnin.Haraldur segir niðurstöður eiga að fást fyrir árslok, sem gegna lykilhlutverki við mat á hversu raunhæf veglagningin er. Þá verði hægt að ákveða hvort frekari rannsóknir séu forsvaranlegar. Fimm mánuðir eru síðan félagið Eyjagöng var stofnað.Það er hreint ótrúlegt að tæplega fimm mánuðum eftir að félagið var stofnað séu rannsóknirnar að hefjast. Þetta er stærsti áfangi í sögu félagsins til þessa,“ segir Haraldur við Eyjafréttir. Hann segir áherslu lagða á að halda almenningu upplýstum og biður jafnframt um nauðsynlegan vinnufrið.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More