0
Kerfissigur Orbans eða ungversk lýðræðisbylting
April 11, 2026
RÚV
Peter Magyar hefur á örstuttum tíma orðið eitt þekktasta nafnið í ungverskum stjórnmálum. Hann er lögfræðingur og hóf stjórnmálaþátttöku innan Fidesz-flokksins, sem hefur verið við völd í Ungverjalandi í 16 ár.Peter Magyar, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Ungverjalandi, gæti tekist að leggja Viktor Orban í kosningum á morgun. Orban vonast til þess að kerfið sem hann hefur byggt síðustu sextán árin tryggi honum tuttugu til viðbótar á valdastóli.Hann var því kannski ekki líklegastur til að veita Victor Orban forsætisráðherra mikla samkeppni í þessum kosningum.
En það gæti farið svo að hann verði sá sem takist að koma honum frá.Magyar ólst upp í Búdapest. Hann er fæddur í mars 1981 og er því nýorðinn 45 ára. Hann útskrifaðist úr háskóla 2004, gegndi ýmsum störfum innan stjórnsýslunnar og var farinn að vinna fyrir Fidesz-flokkinn nokkrum árum síðar. Þar kynntist hann því hvernig kerfið virkar og segir að það hafi síðar mótað gagnrýni hans á stjórnvöld.Hann var áberandi á bak við tjöldin í flokknum og í góðu sambandi við flokksforystuna. Hann kynntist Judith Varga, sem síðar varð dómsmálaráðherra, í veislu á vegum flokksins árið 2005. Þau giftu sig ári síðar en hún varð eftir það þingmaður á Evrópuþinginu og dómsmálaráðherra frá 2019-2023.Birti upptöku af eiginkonunni og dómsmálaráðherranumPeter Magyar vann áfram í flokknum á bak við tjöldin en núna sem heimavinnandi faðir frá Brussel. Þegar þau fluttust aftur heim til Búdapest kleif hann metorðastiga flokksins en ekki eins hratt og eiginkonan. Og þetta fór í taugarnar á honum. Og þegar hún var valin til þess að verða dómsmálaráðherra 2019 jókst bara pirringurinn.Hjónabandið og samskiptin þeirra á milli versnuðu svo bara þegar árin liðu og í janúar 2023, tveimur mánuðum áður en þau skildu, tók hann upp samtal sitt og eiginkonunnar, og þáverandi dómsmálaráðherra, þar sem hún lýsir því hvernig hátt settir menn innan stjórnarinnar hefðu beitt sér í málinu, og hefðu þar með framið ýmsa glæpi sem enn eru til rannsóknar hjá ungversku lögreglunni. Þá hefur Varga sakað Magyar um að hafa beitt sig ofbeldi á meðan þau voru saman, en hann segir að þær ásakanir séu runnar undan rifjum flokksforystunnar til að freista þess að koma höggi á hann fyrir kosningarnar.Ég var ekki giftur henni, hún var gift mér“Magyar sagði í viðtali síðar að upptakan hefði verið gerð til að verja stöðu þeirra hjóna, ef flokksforystan snérist gegn henni. En eins og heyrðist í viðtali við hann árið 2024 voru litlir kærleikar milli þeirra hjóna.Þegar fréttamaðurinn byrjaði að spyrja, sagði að hann hefði verið giftur Varga og það hefði verið byrjunin á hans stjórnmálaferli, þá greip hann frammí fyrir honum og sagði, ég var ekki giftur henni, hún var gift mér.“Þetta viðtal við Magyar fór mjög víða og vakti mikla athygli. Því þarna var kominn maður sem þekkti vel til innan flokksins og hvernig kaupin gerðust á eyrinni. Og þarna talaði hann opinskátt um spillinguna sem tíðkaðist innan flokksins. Hann fékk því mikla athygli til að byrja með en gekk illa að stofna fjölmenna hreyfingu því flestir vina hans voru enn þá innan Fidesz-flokksins og vildu ekki fara gegn Orban.Missti náinn bandamann og fékk harðan andstæðingÁrið 2023, sama ár og þau skildu, var upphafið að stjórnmálaferli Peters Magyar. Þar missti Viktor Orban einn af sínum nánustu samstarfsmönnum, í Varga, en fékk í staðinn svarinn andstæðing, í Peter Magyar. Hún átti að leiða Fidesz-flokkinn í framboði til Evrópuþingsins en sagði þess í stað af sér og Magyar gekk í stjórnmálaflokkinn Tisza. Flokkurinn fékk tæplega 30 prósent atkvæða í kosningum til Evrópuþingsins 2024, en Fidesz fékk tæplega 45 prósent, sem er minnsta fylgi sem flokkurinn hefur fengið frá því hann bauð fyrst fram til Evrópuþingsins.Lítil þúfa sem gæti velt þungu hlassiÞegar Magyar tók yfir Tisza-flokkinn var hann smáflokkur og ekki með nein sæti á ungverska þinginu. Flokkurinn heitir eftir einni af þverám Dónár og er núna, í það minnsta út á við svo gott sem eins manns flokkur – lítil þúfa, sem gæti velt þungu hlassi.En í flokknum eru auðvitað fleiri en Peter Magyar og áherslur þeirra fyrir þessar kosningar náðu strax athygli kjósenda. Hann leggur mesta áherslu á að berjast gegn spillingu, þjónustu ríkisins við íbúana og viðbrögð við miklum verðhækkunum sem Ungverjar, eins og flestir aðrir Evrópubúar, hafa fundið mikið fyrir síðustu misseri.Magyar er hægrimaður en hallast frekar að miðjunni, í það minnsta ef miðað er við Orban. Hann forðast eins og hann getur að ræða stríðið í Úkraínu og Evrópusambandið, og þar með samanburð við aðra Evrópuleiðtoga sem Orban hefur staðið í stappi við, og reynir að halda athyglinni á því sem skiptir meirihluta Ungverja mestu, velferðar- og efnahagsmál.Núna eða aldrei ómar um sveitirnarFlestir Ungverjar nefna budduna þegar þeir eru spurðir um það hvað skipti þá mestu fyrir kosningarnar. Og spillingu. Og það er lykillinn að velgengni Peters Magyar í könnunum. Að bjóða leiðir til að bregðast við döpru efnahagsástandi. Og taka á spillingunni, sem virðist ekki hafa truflað Ungverja svo mikið þegar vel áraði. En núna þegar harðnar á dalnum treystir hann því að þeir vilji losna við spillta harðstjórann og gefa honum tækifæri til að taka til. Núna eða aldrei hefur ómað um ungversku sveitirnar síðustu misseri því hann hefur óþreytandi á ferðum sínum um minni borgir og bæi, þar sem fylgi Orbans hefur verið hvað sterkast síðustu 16 árin.Það eru margir á því að úrslit þessara kosninga ráðist í sveitunum. Tæplega tíu milljónir búa í Ungverjalandi og um helmingur þeirra býr í smærri borgum og bæjum. Magyar hefur lagt mikla áherslu á dreifðari byggðir og einnig Ungverja sem búa í nágrannaríkjunum. Í maí í fyrra gekk hann 250 kílómetra leið frá Búdapest og yfir landamærin til Rúmeníu, til þess að afla stuðnings meðal Ungverja í nágrannaríkjunum, sem flestir styðja Orban.Þorpin eru framtíðinUtan borganna eru flestir hallir undir Orban. Og það er ekkert skrítið. Hann hefur sagt að þorpin tilheyri ekki fortíðinni, heldur séu þau framtíðin. Og fjárframlög frá ríkinu hafa streymt inn í þorpin á síðustu árum, hvort sem það er til að viðhalda skólabyggingum eða kirkjum eða koma peningasjálfsölum í öll ungversk þorp, kosningaloforð sem Orban hefur staðið við og fengið mikið lof fyrir úr dreifðari byggðum. Og þar er uppbyggingin núna, miklu frekar en í borgunum. Björn Malmquist segist finna vel fyrir þessu í Búdapest, þar sem flestir styðja Tisza en óvíst hvort það dugi til.Búdapest er höfuðvígi stjórnarandstöðunnar. Það sem fólk talar um við mig hér er nauðsyn þess að koma Viktor Orban frá völdum. Það er mjög mikið talað um spillingu, það er talað um að leiðtogar flokksins og fólk sem tengist flokknum hafi í langan tíma geta dregið sér fé, komist til valda og áhrifa og lagt undir sig fjölmiðla og alls konar starfsemi og grætt óhemju fé á því. Það er talað um að þetta sé höfuðástæðan fyrir þeirri ástríðu sem andstæðingar stjórnvalda hafa fyrir því að sigra í þessum kosningum á sunnudaginn og sjá núna tækifæri til þess í fyrsta skipti í langan tíma. Fidesz-flokkurinn hefur síðustu ár í krafti stöðu sinnar í þinginu geta gert mjög miklar breytingar á kosningakerfinu og það hefur gert stjórnarandstöðuflokkunum mjög erfitt fyrir að komast til alvöru áhrifa, þeir hafa fækkað kjördæmum í landinu og gert breytingar á því hvernig atkvæði eru talin og hvernig atkvæði flytjast á milli kjördæma og yfir á landsvísu. Það er því alveg ljóst að Tisza og Peter Magyar þurfa að vinna talsvert stóran sigur til þess, ekki bara til að fá meirihluta á þinginu, heldur það sem allir horfa á og er þessi gullni kaleikur í þessum kosningum, að ná tveimur þriðju þingsæta, því með þeim árangri getur Tisza komist í sömu stöðu og Fidesz var og er á þinginu og haft nægan styrk til að gera grundvallarbreytingar á þinginu og færa hluti aftur í það horf sem þeir voru fyrir 2010. Hvort það tekst er óvíst en allar skoðanakannanir hér undanfarnar vikur og mánuði benda til þess að Tisza muni sigra, spurningin er bara hvort að sigurinn verði nægilega stór til þess að þeir geti gert þetta.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.