0
Keflavík tryggði sér oddaleik við KR
April 13, 2026
Posted 5 hours ago by
Keishana Washington.RÚV / Mummi LúKeflavík rótburstaði KR 101-65 í fjórða leik liðanna í 8-liða úrslitum Íslandsmóts kvenna í körfubolta í kvöld. Þar með jafnaði Keflavík stöðuna í unnum leikjum í einvígi liðanna í 2-2 og því þarf oddaleik til að skera úr um það hvort liðið kemst í undanúrslit. Grindavík, Haukar og Njarðvík hafa þegar tryggt sér sæti í undanúrslitum.Keishana Washington skoraði flest stig Keflavíkurkvenna í leiknum í kvöld eða 19, auk þess tók hún níu fráköst og gaf 12 stoðsendingar.
Hún var því aðeins einu frákasti frá þrefaldri tvennu.Oddaleikur Keflavíkur og KR verður spilaður á fimmtudagskvöld á heimavelli KR-kvenna í Frostaskjóli.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.