Katla Björg reið á vaðið á EM í lyftingum
0
World

Katla Björg reið á vaðið á EM í lyftingum

April 21, 2026
Scroll

Posted 4 hours ago by

Karla Björg Ketilsdóttir varð í þriðja sæti í B-hópi í 63 kílóa flokki á Evrópumótinu í ólympískum lyftingum í Batumi í Georgíu í morgun. Það má reikna með að hún verði þá í 15. sæti á heildina, þar sem hver hópur telur 12 keppendur og keppendur í A-hópnum eru allar með meiri þyngdir en Katla Björg fyrir mótið.Hún lyfti 95 kílóum í snörun og jafnhenti svo 106 kílóum.

Katla Björg reið á vaðið á EM í lyftingum

Samtals lyfti hún því 195 kílóum en átti 200 kíló samtals fyrir mót.Ísland á fjóra keppendur á mótinu í Georgíu og næst á svið er Guðný Björk Stefánsdóttir í 69 kílóa flokki á morgun. Guðný Björk keppir í A-hóp. Eygló Fanndal Sturludóttir, Evrópumeistari, er frá vegna meiðsla. Katla Björg KetilsdóttirLyftingasamband Íslands

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More