0
Karólína Lea: „Við þurfum að sækja sex stig“
April 11, 2026
RÚV
Undankeppni HM er deildaskipt í fyrsta sinn og er Ísland í A-deild. Liðið tapaði fyrstu tveimur leikjum sínum gegn Spáni og Englandi í mars.Aðeins efsta lið riðilsins kemst beint á HM en hin þrjú öll í umspil og þá gegn misöflugum andstæðingum. Neðsta liðið fellur svo í B-deild fyrir næstu Þjóðadeild og það vill íslenska liðið forðast.Við þurfum að sækja sex stig,“ sagði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir.
Ég held að það sé það eina í stöðunni.“Þær eru með mjög beinskeitt lið,“ sagði Hlín Eiríksdóttir um Úkraínu. Þannig að þetta verður hörkuleikur en vonandi verðum við meira með boltann en í síðasta glugga.“Ísland mætir Úkraínu á þriðjudag klukkan 18:30 og er leikurinn sýndur beint á RÚV 2. Síðari leikur þessa glugga er svo gegn tvöföldum Evrópumeisturum Englands á laugardaginn kemur.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.