0
Júlía sló 30 ára gamalt Íslandsmet Guðrúnar Arnardóttur
April 19, 2026
Posted 3 hours ago by
Júlía Kristín Jóhannesdóttir bætti í gærkvöld Íslandsmetið í 100 metra grindahlaupi þegar hún hljóp á 13,02 sekúndum á háskólamóti í Bandaríkjunum. Íslandsmetið átti Guðrún Arnardóttir og hafði það staðið í 30 ár eða frá árinu 1996 og var 13,18 sekúndur. Júlía Kristín bætti því Íslandsmetið um 16 hundruðustu úr sekúndu sem er mjög gott í spretthlaupsgrein sem þessari.Lágmarkið inn á Evrópumótið utanhúss í Birmingham á Englandi í ágúst er 12,88 sekúndur og því þokast Júlía Kristín einnig nær því.
Aðeins stutt er síðan utanhúss tímabilið hófst hjá Júlíu, en hún var meðal keppenda á HM innanhúss í frjálsíþróttum í síðasta mánuði í 60 metra grindahlaupi, en hún margbætti Íslandsmetið í þeirri grein í vetur.Nánari umfjöllum má finna á vef Frjálsíþróttasambands Íslands.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.