0
J.D. Vance yfirgefur Islamabad án samnings
April 12, 2026
RÚV
J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna segir að samningaviðræður hafi ekki tekist milli Bandaríkjanna og Íran eftir 21 klukkustundar viðræður. Þetta tilkynnti hann fjölmiðlum í Islamabad áður en hann yfirgaf Pakistan um klukkan 7 í morgun að staðartíma.Hann sagði að bandaríska samninganefndin hefði lagt fram einfalda tillögu og það væri þeirra besta lokatilboð.
Það eigi eftir að koma í ljós hvort Íranar samþykki það. Vance gaf þó til kynna að Bandaríkjamenn ætluðu að gefa Írönum tíma til að íhuga tilboð Bandaríkjanna.Varaforsetinn sagði kjarnorkuvopn vera helsta ásteytingarsteininn milli Bandaríkjamanna og Írana. Íranar fullyrða að þeir séu ekki að þróa kjarnorkusprengju en Vance segir að Bandaríkin vilji sjá langtímaskuldbindingu frá Írönum um að þeir séu ekki að þróa eða ætli sér ekki að þróa kjarnorkuvopn í framtíðinni.Einfalda spurningin er: Sjáum við grundvallarskuldbindingu hjá Írönum um að þróa ekki kjarnorkuvopn, ekki bara núna, ekki bara næstu tvö árin, heldur til lengri tíma? Við höfum ekki séð það enn. Ég vona að við munum gera það,“ sagði Vance.Íranir segja kröfurnar ósanngjarnarÍranska ríkisútvarpið IRIB sagði í dag á samskiptamiðlinum Telegram að ósanngjarnar kröfur Bandaríkjamanna hefðu bundið enda á samningaviðræðurnar. Íranska samninganefndin hafi átt í viðræðum í 21 klukkustund til að vernda hagsmuni írönsku þjóðarinnar. Þrátt fyrir ýmsar tillögur frá írönsku samninganefndinni hafi ósanngjarnar kröfur Bandaríkjanna staðið í vegi fyrir framgangi viðræðnanna. Þar af leiðandi hafi samningaviðræðum lokið.Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, Esmaeil Baqaei, sagði í færslu sem birt var á samfélagsmiðlinum X fyrr í kvöld að árangur samningaviðræðnanna velti á því hvort andstæðingurinn taki þátt í þeim af heilindum, láti af óhóflegum og ólögmætum kröfum sínum og virði lögmæt réttindi og hagmuni Írans. Færsluna birti Baqaei áður en Vance tilkynnti um heimferð.Baqaei sagði að samninganefndir hefðu rætt um ýmis málefni í gær, líkt og Hormússund, kjarnorkumál, skaðabætur vegna stríðsátakanna, afléttingu á viðskiptaþvingunum og endalok stríðsátakanna í Mið-Austurlöndum.Bandaríkjaforseta stendur á sama um samningaviðræðurnarDonald Trump Bandaríkjaforseti sagði í viðtali við fjölmiðla í gær að honum væri sama um niðurstöður samningaviðræðnanna. Hann sagði að Bandaríkin hefðu nú þegar fagnað sigri í stríðinu með því að drepa íranska leiðtoga og eyðileggja mikilvæga hernaðarinnviði. Hvort við gerum samning eða ekki skiptir mig engu máli. Ástæðan er vegna þess að við unnum,“ sagði Trump.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.