JD Vance segir vantrausti ekki linna á einni nóttu
0
World

JD Vance segir vantrausti ekki linna á einni nóttu

April 15, 2026
Scroll

Posted 1 hour ago by

Bandaríski varaforsetinn JD Vance segir að enn sé talsvert í land að samkomulag náist milli Bandaríkjanna og Írans enda ríkir mikið vantraust milli leiðtoga landanna, sem ekki verður undið ofan af í einu vetfangi. Vance lýsti þessu yfir í dag á sama tíma og hann kvaðst vongóður um að samningar náist. Fulltrúar Írans hefðu sýnt mikinn samningsvilja, þótt spölur sé í að eðlilegt stjórnmálasamband komist á.

JD Vance segir vantrausti ekki linna á einni nóttu

Viðræður í Pakistan um síðustu helgi báru ekki árangur og eftir það hóf Bandaríkjaher að loka fyrir skipaumferð til og frá Íran um Hormússund. Ekki þykir útilokað að viðræðum verði haldið áfram síðar í vikunni líkt og Donald Trump forseti hefur lýst yfir. Eitthvað gæti gerst á næstu tveimur dögum, við höllumst að því að halda til Pakistan,“ sagði Trump í viðtali við New York Post. Tilgangur viðræðnanna er að ljúka sjö vikna löngu stríði landanna. Ríkismiðlar Írans segja ekkert liggja fyrir um áframhald viðræðna þótt stjórnvöld hafi átt í samskiptum við Pakistana.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More