Játaði að hafa beitt stjúpdóttur sína ítrekuðu kynferðisofbeldi
World

Játaði að hafa beitt stjúpdóttur sína ítrekuðu kynferðisofbeldi

April 9, 2026
RÚV
Scroll

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 13 ára fangelsi fyrir ítrekuð og gróf kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni. Brotin voru framin frá vori ársins 2023 fram að hausti ársins 2025, þegar stúlkan var sex til níu ára gömul.Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur kemur fram að maðurinn hafi verið ákærður fyrir stórfellt brot í nánu sambandi, nauðgun, tilraun til nauðgunar og kynferðisbrot gegn barni, með því að hafa án samþykkis margítrekað haft önnur kynferðismök en samræði við [stúlkuna], með því beita hana ofbeldi og ólögmætri nauðung og með því að nýta sér yfirburði sína og traust hennar og trúnað sem stjúpfaðir og notfært sér að stúlkan gat hvorki spornað við verknaðinum né skilið þýðingu hans vegna aldurs og eftir atvikum svefndrunga.“Þá segir að maðurinn hafi með háttsemi sinni endurtekið ógnað lífi, heilsu og velferð stúlkunnar á sérstaklega sársaukafullan, meiðandi og alvarlegan hátt.Sakfelldur fyrir að brjóta á móður stúlkunnarMaðurinn er einnig ákærður fyrir brot í nánu sambandi og kynferðisbrot gegn barni, með því að hafa ítrekað áreitt stúlkuna kynferðislega með kynferðislegu tali, sýnt henni klámmyndbönd og kynlífshjálpartæki og beðið hana um að prófa tækin.“Maðurinn hafði áður hlotið dóm fyrir ítrekuð og gróf kynferðisbrot.

Játaði að hafa beitt stjúpdóttur sína ítrekuðu kynferðisofbeldi

Fyrir tveimur árum var hann sakfelldur og fékk fimm ára dóm fyrir að brjóta á sambýliskonu sinni, móður stúlkunnar. Móðirin baðst vægðar fyrir hans hönd á sínum tíma og féllst dómarinn á að skilorðsbinda dóminn.Drífa Snædal talskona Stígamóta segir réttarkerfið hafa brugðist börnunum á heimilinu og konunni. Niðurstaðan útsetji þolendur til framtíðar fyrir hótunum. Brotin gegn stúlkunni framdi maðurinn bæði fyrir og eftir dómsuppkvaðningu í máli móðurinnar.Fræðsla í skólanum fékk stúlkuna til að segja fráMóðir stúlkunnar tilkynnti lögreglu í október í fyrra að sambýlismaður hennar og barnsfaðir hefði beitt dóttur hennar kynferðisofbeldi um tveggja ára skeið. Saman eiga þau tvær dætur en konan átti stúlkuna úr fyrra sambandi.Móðirin sagði stúlkuna hafa sagt sér frá brotunum þennan sama dag.Stúlkan sagðist ekki hafa sagt frá brotunum vegna þess að stjúpfaðir hennar hefði sagt að þau væru leyndarmál þeirra. Þegar hún hafi fengið fræðslu um einkastaði í skólanum hafi hún fundið fyrir vanlíðan fyrir að hafa ekki sagt frá brotunum. Þegar hún hafði tækifæri til að ræða við móður sína eina hafi hún sagt henni frá.Maðurinn neitaði því að hafa kynferðislegan áhuga á börnum í skýrslutöku lögreglu daginn eftir að brotin voru tilkynnt.Lofaði stúlkunni að hættaHann gekkst á endanum við þrettán ákæruliðum en neitaði að hluta sök í fernum liðum sem hann gerði athugasemdir við. Hann sagði brotin hafa átt sér stað í tæp þrjú ár. Hann játaði að stúlkan hafi beðið hann um að hætta, hann hefði lofað því en síðan byrjað að brjóta á henni aftur.Hann kvaðst hafa brotið á stúlkunni þegar móðir hennar var sofandi eða ekki heima. Maðurinn taldi heildarfjölda skipta þar sem hann hafi brotið á stúlkunni vera milli 40 og 45.Verjandi mannsins krafðist vægustu refsingar sem lög leyfa, lækkunar bótakröfu og hæfilegra málsvarnarlauna sér til handa. Dómurinn féllst ekki á það.Auk þrettán ára fangelsisdóms var maðurinn dæmdur til að greiða stúlkunni sex milljónir króna með vöxtum í miskabætur. Gæsluvarðhald sem maðurinn hefur setið frá því í október í fyrra er dregið frá refsingunni.Í dómnum er undirstrikað að mikilvægt sé að maðurinn fái þá heilbrigðisþjónustu sem hann þurfi á að halda við fullnustu refsingar sinnar.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More