Ísraelar og Líbanar funda á fimmtudag
0
World

Ísraelar og Líbanar funda á fimmtudag

April 22, 2026
Scroll

Posted 2 days ago by

Fulltrúar Ísrael og Líbanon funda í Washington í Bandaríkjunum á fimmtudaginn. Þjóðirnar samþykktu 10 daga vopnahlé sín á milli á föstudaginn og Hezbollah-samtökin einnig. Árásir hafa þó haldið áfram. Ísraelsher hefur varað Líbana við að snúa til baka á heimili sín í Suður-Líbanon. Þá gerðu Hezbolla-liðar árásir á Norður-Ísrael í gær, sem þeir segja að hafi verið til að svara fyrir brot Ísraela á vopnahléinu.

Ísraelar og Líbanar funda á fimmtudag

Fréttaveitan AFP greinir frá því að samkvæmt ríkisstjórn Líbanon hafi að minnsta kosti 2.454 verið drepnir í Líbanon síðan stríðið milli Ísraela og Líbana hófst 2. mars.Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social í gærkvöld að hann hyggist framlengja vopnahléið þar til Íranar setji fram samstillta tillögu um hvernig hægt væri að binda enda á átökin. Hann segir ákvörðunina hafa verið tekna í ljósi mikillar sundrungar innan stjórnar Írans. Með henni sé hann einnig að verða við beiðni ríkisstjórnar Pakistans.Íranar hafa orðið fyrir mestu mannfalliAl Jazeera birti í gær uppfærða samantekt um fjölda látinna og særðra í stríðinu í Mið-Austurlöndum. Þar kemur fram að í Íran hafa 3.375 verið drepnir í árásum Bandaríkjanna og Ísraels og yfir 26.500 hafa særst í árásum fram til þessa.Þá hafa 2.294 verið drepnir og 7.554 særðir í Líbanon samkvæmt Al Jazeera, sem er lægri tala en ríkisstjórn Líbanon greinir frá og vísað er til hér að ofan.Í Írak hafa 118 verið drepnir og tugir særst.Í Ísrael hafa 26 verið drepnir í Ísrael og 7.693. Þessar tölulegu upplýsingar ná aftur til 28. febrúar og eru vegna árásar Írana á Ísrael.13 bandarískir hermenn hafa fallið í stríðsátökunum og 200 særst.Í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafa 12 verið drepnir og 224 særst.Í Bahrein hafa þrír verið drepnir og tugir særst.Í Jórdaníu hafa 29 særst í árásum, en ekki hefur verið tilkynnt um dráp á almennum borgurum.Í Kúveit hafa 7 verið drepnir og tugir særst.Í Óman hafa 3 verið drepnir og 15 særst.Í Katar hafa 20 særst í árásum.Í Sádí Arabíu hafa 3 verið drepnir og 29 særst.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More