Ísrael og Líbanon ræða vopnahlé á þriðjudag
World

Ísrael og Líbanon ræða vopnahlé á þriðjudag

April 10, 2026
RÚV
Scroll

Ísrael og Líbanon hittast á fundi í Washington í næstu viku til að ræða vopnahlé í stríði Ísraels og Hezbollah og hugsanlegt upphaf samningaviðræðna milli nágrannaríkjanna. Þetta tilkynnti embætti forseta Líbanon í dag.Í yfirlýsingu forsetaembættisins segir að fyrsta símtal þess efnis hafi átt sér stað í kvöld milli sendiherra Líbanons og sendiherra Ísraels í Washington og sendiherra Bandaríkjanna í Líbanon, sem var staddur í Bandaríkjunum.Í símtalinu var samþykkt að halda fyrsta fundinn næstkomandi þriðjudag í utanríkisráðuneytinu til að ræða yfirlýsingu um vopnahlé og upphafsdagsetningu samningaviðræðna milli Líbanons og Ísraels undir verndarvæng Bandaríkjanna,“ segir í yfirlýsingunni.

Ísrael og Líbanon ræða vopnahlé á þriðjudag
RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More