0
Íslenskur sjávarútvegur í brennidepli í Berlinske – „Ótti, stjórn og pólitísk áhrif“
April 18, 2026
Posted 2 hours ago by
Íslenskur sjávarútvegur er í brennidepli í nýrri grein danska dagblaðsins Berlinske og er af heimildarmönnum þess lýst sem nútíma fámennisstjórn“, og sagður vera byggður á fiski, ótta, græðgi og pólitískum áhrifum“.Blaðamaðurinn Emil Eire Frerk Olsen ræddi við 19 heimildarmenn, meðal þeirra eru stjórnmálamenn, sérfræðingar á ýmsum sviðum og fólk sem starfar í sjávarútvegi.
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra er einn þeirra sem ræddu við Olsen.Í greininni segir að sjávarútvegur hafi lagt sitt af mörkum til ríkissjóðs Íslands en að hann sé einnig að éta upp lýðræði landsins að innan“, eins og það er orðað í greininni. Sjávarútvegurinn sé byggður á ótta, stjórn og pólitískum áhrifum.Kvótakerfið hafi farið úr böndunum og leitt til þess að yfirstétt innan sjávarútvegsins hafi óhófleg áhrif á pólitískar ákvarðanir.Samherjamálið er reifað í greininni, auk umfjöllunar um svokallaða skæruliðadeild“, og benda heimildarmenn Berlinske á málið sem grundvallarógn við fjölmiðlafrelsi á Íslandi.Haft er eftir Daða Má að hann hafi lengi reynt að leysa vandann“ en að öflugir þrýstihópar“ standi í vegi. Daði Már nefnir, auk annarra heimildarmanna Berlinske, tengsl Sjálfstæðisflokksins við sjávarútvegsfyrirtæki.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.