Íslenskur sjávarútvegur í brennidepli í Berlingske – „Ótti, stjórn og pólitísk áhrif“
0
World

Íslenskur sjávarútvegur í brennidepli í Berlingske – „Ótti, stjórn og pólitísk áhrif“

April 18, 2026
Scroll

Posted 3 hours ago by

Íslenskur sjávarútvegur er í brennidepli í nýrri grein danska dagblaðsins Berlingske og er honum lýst af heimildarmönnum þess sem nútíma fámennisstjórn“. Hann er sagður vera byggður á fiski, ótta, græðgi og pólitískum áhrifum“.Blaðamaðurinn Emil Eire Frerk Olsen ræddi við 19 heimildarmenn, meðal þeirra eru stjórnmálamenn, sérfræðingar á ýmsum sviðum og fólk sem starfar í sjávarútvegi.

Íslenskur sjávarútvegur í brennidepli í Berlingske – „Ótti, stjórn og pólitísk áhrif“

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra er einn þeirra sem ræddu við Olsen.Í greininni segir að sjávarútvegur hafi lagt sitt af mörkum til ríkissjóðs Íslands en að hann sé einnig að éta upp lýðræði landsins að innan“, eins og það er orðað í greininni. Sjávarútvegurinn sé byggður á ótta, stjórn og pólitískum áhrifum.Kvótakerfið hafi farið úr böndunum og leitt til þess að yfirstétt innan sjávarútvegsins hafi óhófleg áhrif á pólitískar ákvarðanir.Samherjamálið er reifað í greininni, auk umfjöllunar um svokallaða skæruliðadeild, og benda heimildarmenn Berlingske á málið sem grundvallarógn við fjölmiðlafrelsi á Íslandi.Haft er eftir Daða Má að hann hafi lengi reynt að leysa vandann“ en að öflugir þrýstihópar“ standi í vegi. Daði Már nefnir, auk annarra heimildarmanna Berlingske, tengsl Sjálfstæðisflokksins við sjávarútvegsfyrirtæki.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More