0
Íslenskt tryggingafélag varar við læknastofu á Kanarí
April 22, 2026
Posted 2 hours ago by
Tryggingafélagið Vörður varar fólk við því að sækja sér þjónustu á læknastofunni Clinic Diamond á eyjunni Gran Canaria. Þetta er vegna fjölda svikamála sem tryggingafélaginu hefur borist.Starfsfólk stofunnar er sagt hafa lagt það í vana sinn að ýta að fólki ónauðsynlegri læknisþjónustu og rukka fyrir það himinháar upphæðir.Ágúst Mogensen, sérfræðingur í forvörnum hjá Verði, segir þetta vera í fyrsta sinn sem tryggingafélagið grípi til þessa ráðs.
Hann var gestur Síðdegisútvarpsins í dag.Ónauðsynlegar skoðanir fyrir háar fjárhæðirÁgúst segir að fyrir nokkrum vikum hafi Vörður farið að sjá fyrstu dæmin um reikninga sem hafi vakið spurningar. Fleiri og fleiri hafi fylgt í kjölfarið.Þarna er nánast merkt í allar skoðanir á eyðublaðinu trekk í trekk. Okkar trúnaðarlæknir setur spurningamerki við þetta allt saman.“Að öllum líkindum séu skoðanirnar ónauðsynlegar.Mörg mál hafi komið upp í röð og verið hvert frá nokkrum hundruðum þúsunda og upp í margar milljónir króna.Við látum fararstjóra vita úti, sendum bréf á klíníkina, við veltum fyrir okkur frekari aðgerðum en þetta hættir ekkert. Við erum í fyrsta sinn tilneydd til að nafngreina þessa læknastofu til að vara fólk við,“ segir Ágúst.Yfirvöld hafi einnig verið látin vita. Annað tryggingafélag í Noregi hefur einnig varað við þessari tilteknu læknastofu.Ekki vitað til þess að fólk hafi orðið fyrir skaðaVörður mælir með því að fólk noti síðu SOS international þurfi það á læknisþjónustu á ferðalögum erlendis að halda. Þar megi finna lista yfir læknastofur í hverju landi sem mælt er með að fólk sæki sér þjónustu á og hægt sé að treysta.Við vitum ekki til þess að fólk hafi orðið fyrir skaða, frekar en auðvitað bara fjárhagslegt tjón sem getur af hlotist,“ segir Ágúst sem telur stofuna vera spænska.Hún er á tveimur ólíkum stöðum á Gran Canaria.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.