0
Íslenski geitastofninn enn í útrýmingarhættu
April 20, 2026
Posted 2 days ago by
Um 2000 huðnur eru á landinu en til þess að stofninn teljist úr útrýmingarhættu þurfa þær að vera 5000. Geitum hefur fjölgað síðustu ár en greiðslur hafa staðið í stað. Hákon segir að greiðslur hafi þar af leiðandi þynnst út, minna sé greitt fyrir hverja geit.Bæði viljum við auka greiðslur, bæði á afurðir sem er þá eins og þetta er í dag þá fáum við ekki ríkisstuðning fyrir kjötið en við fáum ríkisstuðning fyrir mjólk og fiðu.
Við viljum koma kjötinu inn líka þaning menn fái greitt fyrir það og eins að hækka þessar gripagreiðslur sem við fáum fyrir hverja geit sem við höldum. Það er hugsað aðallega sem leið til þess að ná stofninum upp úr þessum útrýmingarhættutölum,“ sagði Hákon Bjarki Harðarson, formaður deildar geitfjárbænda hjá Bændasamtökunum.Hann segir það geta verið fráhrindandi fyrir þá sem vilji rækta geitur, að bændur þurfi að vinna afurðir sínar sjálfir og selja beint frá býli. Hann segir afurðirnar margar hverjar góðar til síns brúks og nefnir sérstaklega fiðuna: Sem er hægt að kemba af geitunum. Þetta er alveg einstakt. Þú færð ekki betri efnivið til að prjóna úr.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.