Íslandsmeistararnir með sigur í fyrstu viðureign
World

Íslandsmeistararnir með sigur í fyrstu viðureign

March 30, 2026
RÚV
Scroll

Ríkjandi Íslandsmeistarar Hauka tóku á móti Stjörnunni á Ásvöllum í kvöld. Fyrsti leikhluti var fremur jafn en þrjú stig skildi milli liðanna að honum loknum, 24-21. Haukar spóluðu fram úr Stjörnunni í öðrum leikhluta og höfðu 22 stiga forskot í hálfleik, 57-35.Snemma í þriðja leikhluta kom Amandine Toi Haukum 27 stigum yfir með þriggja stiga körfu, 67-40.

Íslandsmeistararnir með sigur í fyrstu viðureign

Stjörnukonum tókst að laga stöðuna og ellefu stigum munaði fyrir síðasta fjórðunginn, 86-75. Stjarnan spilaði vel í fjórða leikhluta og fjör færðist í leikinn. Forskotið sem Hafnfirðingar höfðu þegar kom þeim þó langt því loks unnu Haukar sex stiga sigur, 106-100. Haukar leiða einvígið 1-0 en vinna þarf þrjá leiki til að komast í undanúrslit.Njarðvík með sigur á heimavelliÞá heimsótti Tindastóll Njarðvík þar sem heimakonur reyndust seigari. Jafnt var að loknum fyrsta leikhluta, 26-26, en þaðan höfðu Njarðvíkingar frumkvæðið. Loks voru það sex stig sem skildu liðin að við leikslok, Njarðvík í vil, 103-97.Liðin mætast aftur á föstudag.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More