Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu um versta mannúðarglæp sögunnar
World

Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu um versta mannúðarglæp sögunnar

March 29, 2026
RÚV
Scroll

Ísland var eitt 52 ríkja sem sátu hjá þegar allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna staðfesti með miklum meirihluta atkvæða að versti glæpur gegn mannúð sé ánauð Afríkumanna á nýlendutímanum.Fulltrúar Gana lögðu ályktun þessa efnis fyrir allsherjarþingið og hvöttu jafnframt ríki Sameinuðu þjóðanna til að biðjast afsökunar á þrælaversluninni og íhuga stofnun bótasjóðs.Þess er einnig krafist að stolnum fornminjum frá löndum Afríku verið skilað aftur.

Ísland sat hjá í atkvæðagreiðslu um versta mannúðarglæp sögunnar

Afríkubandalagið og Karíbahafsríki studdu Gana við gerð ályktunarinnar. Engar sérstakar fjárhæðir voru nefndar í því samhengi en kröfur um bætur fyrir þrælasölu hafa orðið æ háværari á síðustu árum.Ályktunin var samþykkt með 123 atkvæðum en Bandaríkjamenn, Ísraelar og Argentínumenn sögðu nei. Fulltrúar 52 ríkja sátu hjá, auk Íslands má nefna Bretland og ríki Evrópusambandsins.Niðurstaðan er ekki bindandi ólíkt ákvörðunum öryggisráðsins. Bresk stjórnvöld hafa lengi þvertekið fyrir að þeim beri að greiða bætur, enda beri ríki samtímans ekki ábyrgð á illvirkjum fortíðarinnar. Hins vegar geri þau sér grein fyrir þeim þjáningum sem þrælarnir máttu þola.John Mahama, forseti Gana, sagði ályktunina koma í veg fyrir að veröldin gleymi örlögum þeirra milljóna sem hnepptar voru í ánauð og allra þeirra sem enn er mismunað vegna uppruna síns.Talið er að tólf til fimmtán milljónir Afríkumanna hafi verið þrælkaðar í Ameríku frá sextándu öld og fram á þá nítjándu. Að minnsta kosti tvær milljónir týndu lífi á leiðinni milli heimsálfanna.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More