„Ísland er stórasta land í heimi“
0
World

„Ísland er stórasta land í heimi“

April 18, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

Fjölskyldu- og skemmtiþátturinn Góðir Íslendingar hefur fengið frábærar viðtökur síðustu vikur og fram að þessu höfum við séð góða gesti ásamt þáttastjórnendum rýna í stóru málin sem snerta hve mest land og þjóð í hita og þunga dagsins. Þannig hafa málefni eins og stjórnmál, veðrið og Eurovision söngkeppnin verið krufin til mergjar. Hildur Vala Baldursdóttir leikkona er með styrka hönd á stýri og hefur hún hingað til notið aðstoðar Sóla Hólm, Friðriks Dórs, Völu Kristínar Eiríksdóttur og Halldóru Geirharðsdóttur meðal annarra.Nú eru það íþróttirnar sem verða skotspónn rýnenda þáttarins og til þess að aðstoða Hildi Völu mæta þau Anna Svava Knútsdóttir og Mikael Kaaber sem eru auðvitað annálað íþróttafólk en einnig vinsælir leikarar.

„Ísland er stórasta land í heimi“

Varamannabekkurinn er einnig þéttsetinn og öflugur því þau Logi Geirsson, Annie Mist og Birgitta Haukdal koma einnig við sögu. Saman munu þau hlaupa yfir sögu okkar og baráttu á sviði íþrótta og rifja upp augnablik á borð við Bermúda skálina, ekkert mál fyrir Jón Pál, fjórtán-tvö, B-heimsmeistarakeppnina og vitaskuld húh-ið okkar góða.Eins og áður spilar tónlistin stóran sess í þættinum, hljómsveit þáttarins undir handleiðslu Magnúsar Jóhanns Ragnarssonar hefur fram að þessu töfrað fram frábær atriði sungin af gestum þáttarins. Eflaust mun lagaval kvöldsins tengjast íþróttum og íþróttasöngvum hvort sem það eru stuðningslög eða lögin sem keyra almennt upp stemninguna á kappleikjum. Áfram Ísland!

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More