Íris verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðismanna
April 10, 2026
RÚV
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í bæjarstjórnarkosningum í vor. Hún hefur verið bæjarstjóri frá 2018 fyrir hönd bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey sem hefur verið í meirihlutasamstarfi með Eyjalistanum. Ég hef ákveðið að verða við þeirri ósk Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum að vera bæjarstjóraefni flokksins í kosningunum í næsta mánuði,“ skrifar Íris á Facebook-síðu sína í dag.
Hún segist ekki síst hafa tekið þessa ákvörðun vegna þess að hún hafi átt gott og traust samstarf við Eyþór Harðarson, oddvita flokksins, auk þess sem gott samstarf hafi verið í nefndum og ráðum allt kjörtímabilið.Fyrir Heimaey varð til fyrir kosningarnar 2018 þegar Sjálfstæðisflokkurinn klofnaði. Ákveðið var fyrr í vor að bæjarmálafélagið byði ekki fram. Allir fulltrúar þess í bæjarstjórn lýstu því yfir að þeir gæfu ekki kost á sér til endurkjörs en nokkrir félagsmenn tóku þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Ég er þakklát frambjóðendum flokksins fyrir að sýna mér þetta traust og vonast til að listinn fái sterkt umboð kjósenda í komandi kosningum. Þannig get ég áfram lagt mitt af mörkum með góðu fólki fyrir Vestmannaeyjar.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.