Íransher gefur lítið fyrir hótun Trumps
April 4, 2026
RÚV
Stjórn Íranshers gefur lítið fyrir hótun Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að ríkið hafi aðeins tvo sólarhringa til að semja um frið eða opna siglingaleiðina um Hormússund, ellegar verði helvíti látið rigna yfir landið.Í yfirlýsingu frá Íransher sakar herforinginn Ali Abdollahi Alibadi Trump um að vera árásargjarn og þrífast af stríðsrekstri. Hótun forsetans sé ógáfuleg, örvæntingarfull og gerð í æsingi.
Alibadi varar Trump enn fremur við því að hlið heljar muni opnast fyrir Ísraelum og Bandaríkjamönnum.Þá segir Ebrahim Zolfaghari, talsmaður Íranshers, að ef árásir haldi áfram muni svæðið allt verða helvíti á jörðu“ fyrir bæði Ísraela og Bandaríkjamenn.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.