Íraninn óstöðvandi á Reykjavíkurskákmótinu
World

Íraninn óstöðvandi á Reykjavíkurskákmótinu

March 29, 2026
RÚV
Scroll

Sigurganga íranska skákmannsins Amin Tabatabaei heldur áfram á Reykjavíkurskákmótinu í Hörpu. Tabatabaei hefur unnið allar sex skákir sínar til þessa og í gær lagði hann að velli franska stórmeistarann Maxime Lagarde í langri baráttuskák.Í viðureigninni á efsta borði hafði Tabatabaei svart gegn Lagarde. Sá franski reyndi að berjast og verjast lengi vel en Íraninn var alltaf með yfirhöndina og náði að klára dæmið.Sjö jafnir í öðru sætiJafntefli urðu úrslit á flestum öðrum efstu borðunum og þýddi það að sigrar hjá Maurizzi, Jianchao Zhou, David Brodsky og Timothe Razafindratsima lyftu þeim upp í skipt annað sæti með fimm vinninga og eru nú sjö skákmenn í þeim hópi, einum vinningi á eftir Tabatabaei.Vignir Vatnar og Guðmundur efstir ÍslendingaVignir Vatnar Stefánsson missti niður vænlegt tafl í jafntefli og minnka þar vonir hans á allra efstu sætum á mótinu.

Íraninn óstöðvandi á Reykjavíkurskákmótinu

Vignir þarf nú sterkan endasprett ætli hann að halda sér námunda við efstu menn.Vignir var einn efstur Íslendingana með 4,5 vinninga en nú hefur Guðmundur Kjartansson náð honum að vinningum. Fjöldi Íslendinga hefur svo 4 vinninga, þar á meðal Markús Orri Óskarsson sem vann gegn stigalægri andstæðingi í seinni umferð gærdagsins.Vignir og Guðmundur mætast í dagSjöunda umferð mótsins hefst kl. 15 í dag og þá mætast meðal annars Vignir Vatnar og Guðmundur Kjartansson. Skákskýringar verða á staðnum undir stjórn Helga Áss Grétarssonar og má gera ráð fyrir að þær hefjist um kl. 17:00 í Stemmu í Hörpu. Mótinu lýkur á þriðjudaginn.Heimasíða Reykjavíkurskákmótsins

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More