Advertisement
Íranar vísa fullyrðingum Trumps um vopnahlé á bug
World

Íranar vísa fullyrðingum Trumps um vopnahlé á bug

April 1, 2026
RÚV
Scroll

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir írönsk stjórnvöld hafa óskað eftir vopnahléi og ætlar að halda ávarp um stöðuna í stríðinu í kvöld. Írönsk stjórnvöld segja ekkert hæft í fullyrðingum Trumps.Stríð Ísraela og Bandaríkjanna gegn Íran hefur staðið síðan í lok febrúar og óbeinar viðræður Bandaríkjanna og Írans virðast litlu skila.Trump sagði í færslu á Truth Social í dag að nýr forseti Írans hefði beðið Bandaríkin um vopnahlé.

Íranar vísa fullyrðingum Trumps um vopnahlé á bug

Hann kvaðst ætla skoða þetta þegar Íranir hefðu opnað fyrir skipaflutninga um Hormússund.Margir klóruðu sér í höfðinu yfir þessu, ekki síst vegna þess að forseti Írans, Masoud Pezeshkian, hefur setið í því embætti síðan sumarið 2024.Æðstiklerkurinn Mojtaba Khamenei, hins vegar, er nýlega tekinn við eftir að faðir hans var felldur í árásum Bandaríkjanna og Ísraels. Æðstiklerkurinn er almennt talinn áhrifamesti ráðamaður Írans.Kalla framferði Trumps skrípaleikÍranska utanríkisráðuneytið vísaði fullyrðingum Trumps alfarið á bug og sagði að Hormússund yrði ekki opnað fyrir tilstilli skrípaleiks Bandaríkjaforseta“, líkt og það var orðað í írönsku ríkissjónvarpi.Nokkur skip hafa fengið að sigla um Hormússund en ekkert bendir til þess að það verði opnað að fullu á næstunni.Trump sagði í færslu sinni í dag að þar til það yrði gert myndu Bandaríkin láta sprengjum rigna yfir Íran. Til stendur að Trump fari yfir stöðuna í stríðinu í ávarpi frá Hvíta húsinu í nótt að íslenskum tíma.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More