Íranar segjast ekki láta undan afarkostum Trumps
April 7, 2026
RÚV
Íransher segist ekki ætla ekki að láta hótanir Bandaríkjaforseta um enn stórfelldari árásir koma í veg fyrir baráttu gegn herjum Bandaríkjanna og Ísrael. Donald Trump gaf Írönum frest til miðnættis að íslenskum tíma í dag til að opna Hormússund ella léti hann eldi og brennisteini rigna yfir landið. Ef við vildum mætti tortíma hverri einustu brú og orkuveri Írans á fjórum klukkutímum,“ sagði Trump á blaðamannafundi í gær og gaf ekkert fyrir að slíkar aðgerðir gætu jafngilt stríðsglæpum.
Hann sagði að ganga mætti milli bols og höfuðs á Írönum á einu kvöldi og það gæti orðið annað kvöld, það er að segja í kvöld. Íranar hafa hafnað vopnahléssamkomulagi við Bandaríkin og Ísrael með milligöngu Tyrkja, Egypta og Pakistana og Trump sjálfur sagði samninginn ekki fullnægjandi skömmu eftir að hafa lýst ánægju með hann. Til stendur að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna greiði í dag atkvæði um útvatnaða ályktun vegna hindrana Írana á skipaferð um Hormússund. Flutningaskip sigla með um fimmtung gas- og olíuframleiðslu heimsins um sundið á friðartímum. Lokunin hefur leitt af sér verulega hækkun á eldsneytisverði. Barein, stutt af öðrum Persaflóaríkjum, hefur í hálfan mánuð staðið í samningaviðræðum við ríki öryggisráðsins um ályktunardrög sem hefðu heimilað hverju því ríki sem vildi að beita afli til að opna sundið. Ríki með neitunarvald hafa streist við og AFP-fréttaveitan segir valdbeitingar hvergi getið í nýjustu drögunum. Háværar sprengingar hafa kveðið við í írönsku höfuðborginni Teheran og nágrannaborginni Karaj í gærkvöld og framan af nóttu. Innlendar fréttaveitur greina frá þessu og segja jafnframt að bænahús gyðinga í höfuðborginni hafi verið eyðilagt í eldflaugaárás. Ísraelsher staðfestir að standa að baki loftárásum á borgirnar og segir tilganginn að tortíma mikilvægum innviðum Írans. Hins vegar hafa hvorki Bandaríkjamenn né Ísraelar staðfest árásina í bænahúsið. Einnig hafa sprengingar heyrst í sýrlensku höfuðborginni Damaskus sem raktar eru til þess að Ísraelsher var að skjóta niður íranskar eldflaugar. Ekki hafa borist tíðindi af manntjóni. Hjón voru drepin í drónaárás á heimili þeirra í Erbil-héraði í Írak.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.