0
Íranar segjast ekki ætla að mæta til friðarviðræðna
April 20, 2026
Posted 3 hours ago by
Írönsk stjórnvöld segjast ekki fyrirhuga að mæta til friðarviðræðna við Bandaríkin í Pakistan í dag. Ríkismiðillinn IRIB greindi frá þessu og hafði eftir ráðamönnum að þeir teldu engar líkur á árangursríkum viðræðum vegna óraunhæfra krafa Bandaríkjamanna.Donald Trump segir samningamenn Bandaríkjanna væntanlega til Pakistan, varaforsetann JD Vance ásamt erindrekanum Steve Witkoff og Jared Kushner, tengdasyni forsetans.
Vopnahlé milli stríðandi fylkinga rennur sitt skeið á miðvikudag.Lokun Hormússunds og herkví Bandaríkjanna um íranskar hafnir eru helstu ásteitingasteinarnir og málin flæktust enn frekar í gær þegar bandarískt herskip réðst á og tók íranskt flutningaskip herskildi á Ómanflóa.Engin niðurstaða varð af friðarviðræðum Bandaríkjanna og Íran 11. apríl en síðan hefur texti friðarskilmála verið í smíðum. Pakistanski forsætisráðherrann Shehbaz Sharif áréttaði í gær vilja stjórnar sinnar til að miðla málum og kvaðst hafa átt uppbyggilegar samræður við Masoud Pezeshkian Íransforseta.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.