Íranar ráðast á þrjú flutningaskip á Hormússundi
0
World

Íranar ráðast á þrjú flutningaskip á Hormússundi

April 22, 2026
Scroll

Posted 3 hours ago by

Skotið var á flutningaskip á Hormússundi, skammt undan ströndum Óman, snemma í morgun. United Kingdom Maritime Trade Operations, breskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í öryggi á sjó, greindi frá þessu.Í tilkynningu segir að skipstjórinn hafi tilkynnt að skip frá íranska byltingarverðinum hafi nálgast gámaskipið og síðan skotið á það. Brú skipsins skemmdist töluvert.

Íranar ráðast á þrjú flutningaskip á Hormússundi

Engan sakaði, enginn eldur kviknaði og engin umhverfisáhrif hafi orðið.Gámaskipið heitir Epaminondas og siglir undir grískum fána. og hafði samkvæmt tilkynningu breska fyrirtækisins fengið heimild til að sigla í gegnum Hormus-sund. Íranskir fjölmiðlar segja hins vegar að skipið hafi virt viðvaranir Írana að vettugi.Tvö skip til viðbótar tekinÞá var skotið á annað flutningaskip vestur af Íran og för þess stöðvuð. Það skip skemmdist ekki. Skipið er skráð í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og var á leið til Sádi-Arabíu. Íranar hafa staðfest að bera ábyrgð á þessari árás.Breska ríkisútvarpið, BBC, greindi svo frá þriðja skipinu sem Íranar hafa ráðist á. Það siglir undir fána Panama og var á leið úr sundinu að Óman. Skipstjórinn var þvingaður til að varpa akkerum. Smávægilegar skemmdir hafa orðið á skipinu.Tvö af þessum þremur skipum eru enn í haldi Írana.Árásin átti sér stað stuttu eftir að Donald Trump forseti Bandaríkjanna framlengdi vopnahlé sem var í gildi í Íran og gaf þannig meiri tíma fyrir friðarviðræður. Þær hafa þó ekki enn farið í gang og óvíst er hvort þetta hafi einhver áhrif á það.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More