0
Íranar hóta lokun Hormússunds að nýju linni herkví Bandaríkjanna ekki
April 18, 2026
Posted 2 hours ago by
Forseti íranska þingsins hótar að Hormússundi verði lokað haldi Bandaríkjamenn herkví um sundið til streitu. Öll för um sundið væri háð leyfi íranskra stjórnvalda.Mohammad Bagher Ghalibaf lýsti þessu yfir í færslu á samfélagsmiðlinum X og bætti við að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði í kvöld á einni klukkustund borið sjö fullyrðingar á borð, sem allar hefðu verið ósannar.
Ghalibaf sagði Bandaríkin ná langt í samningaviðræðum með slíku athæfi. Hann tíundaði það ekki frekar.Trump sagði í kvöld að Bandaríkin linntu herkvínni um leið og samkomulag næðist við Írani. Hann kvaðst jafnframt bjartsýnn á áframhaldandi samningaviðræður við Íran um helgina, þegar hefði mjakast nokkuð í samkomulagsátt og í raun bæri lítið í milli.CNN hefur eftir ónafngreindum írönskum embættismönnum að viðræður haldi áfram í pakistönsku höfuðborginni Islamabad á mánudag.Trump sagði jafnframt að hluti samkomulagsins yrði að bandarískir og íranskir sérfræðingar fjarlægðu allt auðgað úran úr kjarnorkuverum landsins áður en það yrði flutt til Bandaríkjanna.Utanríkisráðuneyti Írans hefur sagt úranið hvergi á förum. Verðið á tunnunni af Brent-Norðursjávarolíu fór niður undir 90 dali á tunnuna fyrir lok dags, eftir að tilkynnt var um opnun Hormússunds.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.