Innanlandsflugi aflýst en ferðum bætt við á morgun
April 2, 2026
RÚV
Nær öllu innanlandsflugi Icelandair var aflýst í dag vegna veðurs. Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Icelandair, segir að flugi til og frá Akureyri, Egilsstöðum og Ísafirði hafi verið aflýst. Flugferðum verði bætt við eftir þörfum til þess að koma farþegum á áfangastað. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Isavia fór þó ein vél til Ísafjarðar klukkan 17:28 og fóru tvær vélar Norlandair til Vestmannaeyja klukkan 16:00.
Áætlað er að ein vél frá Ísafirði lendi 18:57.Gul veðurviðvörun hefur verið í gildi í dag á Norðurlandi eystra og Austurlandi að glettingi vegna suðaustan hvassviðris og hríðar. Hægt er að nálgast upplýsingar um innanlandsflug á vefsíðu Isavia.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.