Íbúar Evrópusambandsins verða færri og eldri um næstu aldamót
0
World

Íbúar Evrópusambandsins verða færri og eldri um næstu aldamót

April 18, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

Íbúum Evrópusambandsríkjanna fækkar um tæp tólf af hundraði fyrir aldarlok og þeir eldast nokkuð, samkvæmt nýrri mannfjöldaspá Eurostat, evrópsku hagstofunnar. Það þýðir að 53 milljónum færri munu búa í ríkjunum árið 2100 en núna, eða rétt tæpar 400 milljónir.Til samanburðar eru Bandaríkjamenn tæpar 343 milljónir og fólksfjöldinn nemur um 8,3 milljörðum í heiminum öllum.

Íbúar Evrópusambandsins verða færri og eldri um næstu aldamót

Samkvæmt áætlun stofnunarinnar bjuggu tæpar 452 milljónir í Evrópusambandinu á síðasta ári.Nokkuð hægði á fólksfjölgun á tímum kórónuveirufaraldursins en það snerist fljótt við aftur. Til skamms tíma er talið að áfram verði hæg fólksfjölgun til ársins 2029 og að þá taki samdráttur við.Það sem eftir lifir öldinni er búist við að hlutfall barna, ungs fólks og fólks á vinnualdri af heildarmannfjöldanum dragist talsvert saman og að hlutfall 65 ára og eldri aukist að sama skapi.Talið er að hlutfall áttræðra og eldri aukist úr sex prósentum í dag upp í sextán af hundraði árið 2100.Þetta endurspeglast í mannfjöldatré fyrir ríki Evrópusambandsins sem sýnir núna samfélag að stórum hluta byggt vinnandi fólki yfir fimmtugu, þar sem fólk lifir lengi og með hvort tveggja lágri dánar- og fæðingartíðni.Þessar upplýsingar byggja á mannfjöldaspám sem Eurostat birti á fimmtudag. Niðurstöðurnar byggjast á forsendum um hlutfallslega samleitni frjósemis-, dánartíðni- og fólksflutningamynstra innan ESB-landanna.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More