Í gæsluvarðhaldi grunaðir um að stinga mann í heimahúsi
0
World

Í gæsluvarðhaldi grunaðir um að stinga mann í heimahúsi

April 13, 2026
RÚV
Scroll

Rannsókn á stórfelldri líkamsárás í heimahúsi á Akureyri aðfaranótt föstudags miðar vel, að sögn lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Tveir eru í gæsluvarðhaldi í fangelsinu á Hólmsheiði fram á laugardag, Íslendingar á þrítugs- og fertugsaldri.Þeir eru grunaðir um að hafa ráðist að manni og valdið honum alvarlegum áverkum. En hinn meiddi hafði stunguáverka og gekkst undir skurðaðgerð vegna þeirra.

Í gæsluvarðhaldi grunaðir um að stinga mann í heimahúsi

Til rannsóknar er meðal annars hvort árásin teljist tilraun til manndráps.Ekki fengust upplýsingar um hvort hinn slasaði lægi enn á sjúkrahúsi. Í viðtali um helgina sagði lögregla manninn ekki í lífshættu.Lögreglan segir rannsóknina í hefðbundnum farvegi. Þegar hafa verið teknar skýrslur af málsaðilum, verið sé að rýna í framburð þeirra og frekari skýrslutökur séu framundan.Þegar líður á vikuna kemur í ljós hvort lögregla fer fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir mönnunum.Rannsóknardeild lögreglustjórans á Norðurlandi eystra fer með rannsókn málsins og naut aðstoðar tæknideildar LRH við vettvangsrannsókn og sérsveitar RLS við handtökur.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More