Í dag: Meistarakeppnin í fótbolta og Íslandsmótið í sundi
World

Í dag: Meistarakeppnin í fótbolta og Íslandsmótið í sundi

March 29, 2026
RÚV
Scroll

Nú styttist í Íslandsmótið í fótbolta en keppni í Bestu deild karla hefst 10. apríl. Formlegt upphaf keppnistímabilsins verður þó í dag þegar Íslands- og bikarmeistarar síðasta árs mætast í meistarakeppni KSÍ. Íslandsmeistarar Víkings og bikarmeistarar Vestra eigast þá við á heimavelli Íslandsmeistaranna á Víkingsvelli klukkan 14:00.Leikurinn verður sýndur beint á RÚV og hefst útsending k.

Í dag: Meistarakeppnin í fótbolta og Íslandsmótið í sundi

13:50. Sé jafnt eftir venjulegan leiktíma verður farið beint í vítaspyrnukeppni til að ákvarða sigurvegara.Í Meistarakeppni KSÍ karla er keppt um Sigurðarbikarinn sem gefinn var af KR til minningar um Sigurð Halldórsson. Breiðablik er núverandi handhafar bikarsins eftir að hafa unnið 3-1 sigur á KA í fyrra.Íslandsmótið í sundi í 50 metra laugÍslandsmótinu í sundi í 50 metra laug lýkur svo í Ásvallalaug í Hafnarfirði í kvöld og verður úrslitahlutinn sýndur beint á RÚV 2 klukkan 16:20. Besta sundfólk landsins er þar samankomið og eltist við Íslandsmet og lágmörk inn á Evrópumótið í 50 metra laug í sumar.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More